S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
||
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
15.6.2009 | 2:45 | FÍR
Los Angeles Lakers NBA meistari í 15. sinn
Leikurinn var talsverð vonbrigði fyrir alla aðra en aðdáendur Lakers. Eftir frábæra byrjun heimamanna þá sprakk á bílnum og engin tjakkur né varadekk með í för og leikmenn Los Angeles gengu á lagið og náðu undirtökunum með miklu áhlaupi í öðrum leikhluta. Lokatölur leiksins urðu 99:86 Það má segja að reynsla leikmanna og þjálfarateymis Los Angeles hafi ráði úrslitum í þessu einvígi. Orlando fékk mörg tækifæri á því að taka frumkvæðið og skemmst er að minnast atvika í leik 2 í Los Angeles og í leik 4 í Orlando þar sem liðið hefði hæglega getið náð forystunni 3-1 eða í það minnsta jafnað seríuna 2-2 en í staðinn komst Lakers í 3-1. X factorar Lakers í þessari seríu voru Trevor Ariza og Derek Fisher. Þeir áttu stóran þátt í mikilvægum sigrum og viðsnúningum í leikjum. Kobe Bryant var valinn verðmætasti (MVP) leikmaður úrslitanna og náði að leiða lið sitt til meistaratitils og vera leiðtoginn með greini. |