© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
23.5.2009 | 19:00 | Stefán
Finnarnir reyndust einu númeri of stórir
Yngvi Gunnlaugsson þjálfari að ræða við leikmennina sína Mynd: SÞB
Finnland vann öruggan sigur á Íslandi 92-37 í lokaleiknum hjá U-16 stúlkna. Eins og lokatölur gefa til kynna var sigur þeirra bláu aldrei í hættu. Stelpurnar sýndu þá á köflum afar fína takta og ljóst að munurinn á þessum liðum er ekki svona mikill.

Byrjunarlið Íslands: María Ben Jónsdóttir, Eva Rós Guðmundsdóttir, Thelma Ásgeirsdóttir, Berglind Gunnarsdóttir og Margrét Rósa Hálfdanardóttir.

Það var ljóst frá fyrstu mínútu í hvað stemmdi en það var þó Ísland sem skoraði fyrstu körfuna en það gerði Eva Rós Guðmundsdóttir. Þá komu 12 stig í röð hjá Finnlandi og róður Íslands orðin frekar þungur strax í upphafi. Staðan að loknum fyrsta leikhluta var 25-9 Finnum í vil.

Stelpurnar sýndu klærnar í öðrum leikhluta en þær byrjuðu að minnka muninn jafnt og þétt. Á þessum kafla voru þær grimmar í vörninni ásamt því að þær pössuðu boltann mun betur. Því að í hvert skipti sem boltinn tapaðist þá voru Finnarnir snöggir upp völlinn til að refsa. Stelpurnar náðu tveim góðum rispum í leikhlutanum og minnkuðu muninn í 11 og 13 stig. En nær komust þær ekki að sinni og Finnarnir juku muninn og staðan í hálfleik 48-25.

Byrjunin í seinni hálfleik hjá Íslandi var afleit en stelpurnar töpuðu hverjum boltanum á fætur öðrum gegn sterkri boltapressu hjá Finnlandi. Svo fór að fyrstu 13 stig leikhlutans voru finnsk en stlepurnar náðu þó aðeins að svara og staðan var 61-30 þegar um 3 mínútur voru eftir af þriðja. Finnarnir kláruðu leikhlutann sterkt en þær finnsku skoruðu tíu stig gegn tveimur frá Íslandi og því munurinn kominn í 39 stig 71-32.

Það var aldrei spurning hvað myndi gerast í fjórða leikhluta en þær finnsku héldu áfram að keyra á íslensku stelpurnar og munurinn jókst jafnt og þétt og að lokum var staðan orðin 92-37 fyrir Finnlandi.

Ísland mætir Danmörku á morgun í leik um þriðja sætið en þegar þessi lið mættust í vikunni þá unnu Danir í ótrúlegum leik þar sem Íslandi átti að vinna. Hefst leikurinn kl. 08.30(06.30 að íslenskum tíma)

Stig:
María Ben Jónsdóttir 8 stig
Margrét Rósa Hálfdanardóttir 7 stig
Eva Rós Guðmundsdóttir 5 stig
Berglind Gunnarsdóttir 5 stig
Ína María Einarsdóttir 4 stig
Árnína Lena Rúnarsdóttir 3 stig
Hrafnhildur Sævarsdóttir 2 stig
Árný Sif Gestsdóttir 2 stig
Thelma Ásgeirsdóttir 1 stig
Sandra Grétarsdóttir, Sigrún Albertsdóttir og Dagbjört Samúelsdóttir spiluðu en náðu ekki að skora.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Sumarið 2009 skrifaði KKÍ og Marka hef. umboðsaðili Spalding undir þriggja ára samning þess efnis að leikið verður með Spalding bolta í Iceland Express-deild karla og kvenna. Á myndinni sjást Hannes S. Jónsson formaður KKÍ og Björn Leifur Þórisson frá Marka ehf. skrifa undir samninginn.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið