© 2000-2025 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
23.5.2009 | 13:23 | Stefán
18 ára liðið spilar til úrslita eftir frábæran sigur á Norðmönnum
Þorgrímur Björnsson stóð vaktina í vörninni í dag Mynd: SÞB
Strákarnir í U-18 mæta Finnum í úrslitum Norðurlandamótsins en það var ljóst eftir sigur Íslands á Noregi áðan. Ísland vann öruggan sigur 75-60 en strákarnir spiluðu afar vel á löngum köflum í leiknum. Ísland er efst með þrjá sigra í riðlinum á meðan Finnar eru með tvo sigra en vegna hagstæðra úrslita úr innbyrðis viðureignum fara þeir í úrslitaleikinn.

Byrjunarlið Íslands: Tómas Tómasson, Trausti Eiríksson, Ægir Þór Steinarsson, Björn Tyler Björnsson og Sigurður Þórarinsson.

Arnþór Guðmundsson var í búning í dag en hann er að jafna sig á ökklameiðslum. Ingi Þór þjálfari byrjaði með hann á bekknum en eins og leikurinn þróaðist í dag þá þurfti hann ekki að setja hann inná.

Það var ljóst frá fyrstu sekúndu að strákarnir voru gífurlega einbeittir en þeir tóku öll völd á vellinum. Fyrsta karfan kom frá besta manni vallarins Hauki Pálssyni en strákurinn setti 13 stig á fyrstu sjö mínúturm leiksins. Norðmenn komust yfir 2-3 með körfu og víti að auki og leiddu. En það var í eina skiptið sem þeir voru yfir í leiknum. Ísland átti næstu átta stig leiksins og munurinn orðinn sjö stig. Noregur bætti við einni körfu en þá skoraði Ísland næstu níu stig leiksins og munurinn orðinn 14 stig 19-5 eftir sjö mínútur. Haukur Pálsson þurfti svo að fara út af með tvær villur en Noregur kláraði leikhlutann með síðustu fimm stigunum og munurinn níu stig eftir fyrsta leikhlutann 19-10.

Noregur byrjaði annan leikhluta af krafti en þeir skoruðu níu fyrsti stigin og jöfnuðu 19-19. Ísland náði að vinna sig aftur inn í leikinn og keyrðu muninn upp á ný og leiddu 31-21 þegar þrjár mínútur voru eftir. Noregur náði enn á ný að minnka muninn og í hálfleik munaði aðeins þremur stigum 38-35 en síðustu stig hálfleiksins voru norsk.

Seinni hálfleikur var eign Íslands frá upphafi til enda en þeir hófu hann með því að skora níu stig gegn engu og leiddu 52-39 að þriðja loknum. Í fjórða leikhluta reyndi Noregur að minnka muninn en leikurinn var eign Íslands og lokatölur voru 75-60 en munurinn fór mest í 21 stig.

Strákarnir lentu í villuvandræðum snemma í leiknum en þeir Tómas Tómasson, Trausti Eiríksson, Ægir Steinarsson og Haukur Pálsson voru komnir með 2 og 3 villur mjög snemma í leiknum. Þeir náðu að spila sig út úr því og landa þessum mikilvæga sigri.

Stig:
Haukur Pálsson 27 stig
Tómas Tómasson 11 stig
Ægir Steinarsson 10 stig
Haukur Óskarsson 9 stig
Daði Berg Grétarsson 8 stig
Trausti Eiríksson 6 stig
Arnar Pétursson 2 stig
Sigurður Þórarinsson 2 stig
Ragnar Nathaníelsson, Þorgrímur Björnsson og Björn Tyler Björnsson spiluðu en náðu ekki að skora.

Arnþór Guðmundsson hvíldi vegna meiðsla.

Úrslitaleikurinn er á morgun kl. 11.15(9.15 að íslenskum tíma.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Georgia Olga Kristiansen er ein fárra íslenskra kvenna sem hafa lagt fyrir sig dómgæslu að einhverju marki.  Hún var áður leikmaður með KR í mörg ár.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið