© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
26.9.2001 | 10:51 | bl
Michael Jordan tekur fram skóna
Snjallasti körfuknattleiksmaður heims, Michael Jordan, hefur ákveðið að taka fram skóna og leika á ný í NBA-deildinni. Jordan tilkynnti þetta í gær og jafnframt að leikmannalaun hans hjá Washington Wizards í vetur rynnu óskipt til þeirra sem misst hafa fyrirvinnuna í hryðjuverkaárásinni á Bandaríkin.

Jordan sagði að hann snéri aftur á völlinn vegna þess að hann elskaði körfubolta og saknaði þess að vera ekki í eldlínunni. Hann sagði jafnframt að besta leiðin til að kenna ungum leikmönnum væri að segja þeim til inni á vellinum og það hyggðist hann gera hjá Washington-liðinu.

Þá sagði hann af sér sem forseti körfuknattleikssviðs Wizards og tilkynnti að hann myndi ekki veita nein viðtöl fyrir opnum æfingabúða Wizards þann 1. október nk. í virðingarskini við fórnarlömb hryðjuverkanna.

Í nýjasta fréttabréfi NBA er nánar sagt frá endurkomu Jordans, aðstoð NBA-liðanna við hjálparstarfið og margt fleira.

Heimasíða Washington Wizards
Leikmannasíða Michael Jordan
Michael Jordan á nba.com
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Þorleifur Ólafsson í leik með Grindavík í DHL-höllinni 2008.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið