© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
   
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
2.4.2009 | 14:57 | Stefán | Þjálfaramál
Þjálfaramenntun
Fræðslunefnd KKÍ hefur lokið fræðsluáætlun KKÍ sem kynnt verður innan skamms. Áætlunin nýtir fræðslustig ÍSÍ og mun KKÍ sjá um sérgreinahlutann í náminu. Alls eru það þrjú stig sem hægt verður að ljúka, Þjálfari 1, Þjálfari 2 og Þjálfari 3. Hverju stigi er skipt upp í almennan hluta sem er í umsjón ÍSÍ og hægt er að nema í fjarnámi í þjálfara 1 og sérgreinahluta sem er í umsjón KKÍ. Stefnt er að því að hefja námskeiðahald af hálfu KKÍ strax næsta haust.

Liður í innleiðingu áætlunarinnar er að meta alla virka körfuknattleiksþjálfara inn í stigin svo meta megi fræðsluþörf KKÍ næstu misserin. Við viljum því biðja alla þjálfara að senda starfsferilskrá inn til KKÍ eigi síðar en þriðjudaginn 7. apríl nk.

Gæta þarf þess að í starfsferilskránni komi fram öll reynsla og menntun sem nýst gæti við þjálfun, s.s. þjálfun í öðrum íþróttum, námskeið sem sótt hafa verið innanlands og erlendis, nám á háskólastigi í uppeldis-, íþrótta- og sálfræði, dómaranámskeið o.m.fl.

Vakin er athygli á því að listinn er langt frá því að vera tæmandi og því er betra að fram komi meiri en minni upplýsingar.

Fræðslunefnd KKÍ hefur skipað nefnd til að meta þjálfara inn í fræðslukerfi KKÍ, en í henni eiga sæti Snorri Örn Arnaldsson formaður fræðslunefndar, Friðrik Ingi Rúnarsson framkvæmdastjóri KKÍ og Sigurður Ingimundarson A-landsliðsþjálfari karla. Nefndin mun skila af sér fyrir ársþing 2009.

Starfsferilsskrá sendist á kki@kki.is

Hægt er að sjá samantekt um ýmis námskeið sem hafa verið haldin á Íslandi undanfarin ár.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Erlingur Hannesson, fararstjóri, og Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari U18 kk, stigu villtan stríðsdans þegar strákarnir í átján ára liðinu tryggðu sér Norðurlandameistaratitilinn í Solna í Svíþjóð í maí 2009. Strákarnir lögðu Finna í úrslitaleik og þeir félgar stóðust ekki mátið og tóku villt dansspor á parketinu í Solna við mikinn fögnuð viðstaddra.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið