© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
   
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
2.4.2009 | 9:47 | RG
Gríðarlegur fjöldi fylgdist með fjórframlengda leiknum
Eins og margoft hefur komið fram fór einn magnaðasti körfuboltaleikur Íslandssögunnar fram í DHL höllinni á föstudag þegar fjórframlengja þurfti leik KR og Keflavíkur í undanúrslitum Iceland Express deildarinnar. Það er athyglisvert að rýna í fjölda þeirra sem fylgdust með leiknum.

Nú er rúmlega ár síðan KKÍ tók í notkun SmartStat kerfið sem gerir netverjum kleyft að fylgjast með tölfræði leikjanna í ”beinni útsendingu í tölvunni heima. Síðasta vor mældust mest 600 ”áhorfendur” á sama tíma á einum leik, en leikurinn á föstudag sló öll met, og síðasta klukkutímann voru aldrei færri en 500 að fylgjast með á sama tíma.

Undir lokin voru þeir orðnir 802 sem fygldust með. Þennan dag kíktu rúmlega 3000 manns inn ”Live stat” síðuna á einhverjum tímapunkti og samkvæmt heimasíðu KR voru 1146 sem fygldust með leiknum í KR-TV. Þá hafa ekki verið nefndir þeir 1000 sem mættu í DHL höllina.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Ármenningar urðu Íslandsmeistarar í 1. flokki 1963 og 1964. Aftari röð frá vinstri: Offert Nåbye, Davíð Jónsson, Hilmar Ingólfsson, Sigurjón Yngvason (ofar), Finnur Finnsson og Hafsteinn Hjaltason. Fremri röð frá vinstri: Árni Samúelsson, Jón Þór Hannesson, Elías Þ. Magnússon og Lárus Lárusson.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið