© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
31.3.2009 | 16:35 | Stefán
Firma- og hópakeppni Hauka 2009
Firma- og hópakeppni Hauka verður að þessu sinni haldin laugardaginn 11. apríl 2009.

Leikið verður á Ásvöllum, á tveim löglegum körfuboltavöllum samtímis, fyrir utan úrslitaleikinn sem verður leikinn á aðalvellinum.

Leikið verður að mestu eftir venjulegum körfuboltareglum, nema leikurinn verður 2 X 12 mínútur, og klukkan aðeins stöðvuð síðustu 2 mínúturnar í leiknum. Til að tefja leikinn sem minnst í vítaskotum verður aðeins tekið eitt skot, sem gildir 1, 2 eða 3 stig eftir atvikum. Tveir dómarar (leikmenn meistaflokks Hauka) verða á hverjum leik og lögleg leikklukka á báðum völlum.

Mótið er eingöngu ætlað leikmönnum 20 ára og eldri og ekki heimilt að hafa leikmenn úr 1. deild eða Iceland Expressdeild í liðunum.

Þátttökugjald er kr. 20.000.- fyrir hvert lið, Innifalið í gjaldinu eru veglegar veitingar í boði fyrir keppnisliðin.

Sigurvegarar fá bikar í verðlaun og gullverðlaunapeninga.

Þátttökutilkynningar berist sem fyrst til undirritaðra.

Ívar Ásgrímsson
ivar@fasteignastofan.is
Sími: 8612928

Pétur Ingvarsson
peturi@hotmail.com
Sími: 8977979
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá Smáþjóðaleikunum á Möltu 1993.  A-landslið kvenna, silfurlið mótsins, í verðlaunaafhendingu.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið