© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
28.3.2009 | 17:40 | FÍR
Snæfell vann í tvíframlengdum leik
Sigurður Þorvaldsson lék vel fyrir Snæfell í dag
Draminn og spennan heldur áfram í undanúrslitum Iceland Express deildar karla. Grindavík og Snæfell mættust í þriðja leik í sínu einvígi í dag.

Í gær þurfti að framlengja fjórum sinnum til að fá fram úrslit hjá KR og Keflavík og í dag þegar Grindavík og Snæfell mættust þurfti tvær framlengingar.

Það var ekki margt sem benti til þess þegar skammt var til leiksloka að draminn frá því í gær endurtæki sig í leik Grindavíkur og Snæfells þar sem gestirnir frá Stykkishólmi voru með vænlega stöðu og með leikinn í hendi sér. Grindvíkingar voru hins vegar á öðru máli og söxuðu jafnt og þétt á forskot Snæfells og undir lokin gat Helgi Jónas Guðfinsson tryggt sínum mönnum sigur þegar hann átti tvö vítaskot og Grindavík einu stigi undir. Helgi setti annað vítið niður og því þurfti að framlengja.

Eftir aðra framlengingu til náði Snæfell undirtökunum og vann loks sigur 97:104.

Næsti leikur liðanna verður í Stykkishólmi á þriðjudaginn klukkan 19:15
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
KR ingurinn Keith Vassell berst við Grindvíkingana Dag Þórissona og Alexander Ermolinskij en KR ingurinn Jonathan Bow fylgist með í leik liðanna veturinn 1999-2000
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið