© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
20.3.2009 | 10:00 | Kristinn
Úrslitakeppni 1.deildar karla hefst í kvöld
Hart verður barist í úrslitakeppninni. Myndir: Karfan.is
Úrslitakeppni 1. deildar karla hefst í kvöld með fyrstu leikjum Vals og KFÍ og Hauka og Fjölnis. Það lið sem fyrr sigrar 2 leiki kemst áfram í úrslitaviðureignina um hvaða lið fylgir sigurvegurum Hamars upp í Iceland Express-deildina að ári, en vinna þarf tvo leiki á ný í úrslitunum til að tryggja sér sigur í rimmunni.

Valur og KFÍ mættust tvisvar í vetur. Valsmenn fóru til Ísafjarðar í fyrri umferðinni og höfðu þar sigur 59:70. Í seinni umferðinni komu svo KFÍ-menn í bæinn og sigruðu 82-89 í Vodafone-höllinni.

Valsmenn höfnuðu í 2. sæti í deildinni og eiga því heimavallarréttinn í þeim viðureignum sem þeir eiga eftir í úrslitakeppninni.

Haukar og Fjölnir mætast í hinni úrslitaviðureigninni. Haukar enduðu í 3. sæti í deildinni og fá því Fjölni sem endaði í 4. sæti.

Haukar höfðu sigur í báðum leikjum þessara liða í vetur með tveimur stigum, fyrst 72:74 í Grafarvoginum og svo 77:75 á sínum heimavelli á Ásvöllum. Haukar spiluðu fyrri leikinn án George Byrd, en hann kom ekki til liðs við Hauka fyrr en eftir áramót, og Fjölnismenn hafa fengið til sín nýjan erlendan leikmann í lok tímabilsins þar sem Patrick Oliver hefur átt við meiðsli að stíða að stórum hluta tímabilsins.

Það má því búast við hörku leikjum milli þessara liða í úrslitakeppninni en bæði lið stefna á að fara upp um deild á þessu tímabili.

KKÍ.is fékk Ágúst Björgvinsson, þjálfara Hamars og íslenska kvennalandsliðsins til að spá fyrir um þessa viðureignir:

Valur · KFÍ: „Valur vinnur 2-1. Stendur og fellur með leikstjórnanda KFÍ, Craig Schoen og hvað hann gerir, þeir vinna heima á Ísafirði en ég held að þeir vinna ekki 2 leiki“ sagði Ágúst.

Haukar · Fjölnir: „Haukar unnu síðasta leik í framlengingu þannig að þetta verður jafnt, ef Fjölnismenn keyra upp hraðann og ná stemningu í sitt lið þá vinna þeir 2-0“ segir Ágúst sem spáir Fjölni upp um deild. „Það getur enginn sagt til um úrslitin, vonlaust að spá, mest spennandi úrslitakeppnin í ár“ sagði Ágúst að lokum.

Leikir kvöldsins: Leikir 1 · föstudaginn 20. Mars
Valur · KFÍ
kl 20.00 í Vodafone-höllinni

Haukar · Fjölnir
kl 19.15 á Ásvöllum

Næstu leikir:
2. leikur · 22. mars kl. 19.15 · Ísafjörður
3. leikur · 24. mars kl. 20.00 · Vodafone-höllin · (Oddaleikur ef þarf)

2. leikur · 22. mars kl. 19.15 · Íþróttamiðstöðin Grafarvogi
3. leikur · 24. mars kl. 19.15 · Ásvellir · (Oddaleikur ef þarf)

Stefnt er að því að lokaúrslitin hefjist svo föstudaginn 27. mars.

Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Lið KR í 8. flokki sem varð Íslandsmeistari vorið 2008 undir stjórn Sigurðar Hjörleifssonar.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið