© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
16.3.2009 | 12:16 | FÍR
Stjarnan - Snæfell í beinni á Stöð 2 Sport
Það mun mikið mæða á þessum köppum í kvöld
Leikur Stjörnunnar og Snæfells í kvöld í 8-liða úrslitum karla verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Leikurinn hefst klukkan 19:15

Þetta er sögulegur leikur hjá körfuknattleiksliði Stjörnunnar en þetta er í fyrsta sinn sem liðið leikur í úrslitakeppni og þessi leikur þar með sá fyrsti á heimavelli. Einnig mun þetta verða í fyrsta sinn sem körfuboltaleik er sjónvarpað beint frá íþróttahúsinu í Ásgarði í Garðabæ en leikurinn verður í beinni á Stöð 2 Sport

Í kvöld verður eitt og annað í gangi á leikjum kvöldsins.

Borgarskot Iceland Express sem hefur slegið í gegn undanfarin ár verður á sínum stað en 4 heppnir áhorfendur frá tækifæri á að skjóta sig til útlanda. Borgarskotið er á öllum leikjum úrslitakepna karla og kvenna.

Á leik Stjörnunnar og Snæfells verður einnig " Iceland Express Hringlið " Hringlið fer þannig fram að einum áhorfanda gefst kostur á að reyna sig við að er snúa sér í 10 hringi við miðlínu vallarins og reyna svo að skora öðru megin. Viðkomandi hefur 24 sekúndur til að framkvæma þrautina.

Hringlið er í völdum leikjum í úrslitakeppninni og var fyrst prófað í úrslitakeppnunum í fyrra og er óhætt að segja að það hafi gersamlega slegið í gegn.

Þeir sem ná að hitta í Borgarskotinu eða Hringlinu fá ferð fyrir 2 með Iceland Express.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá undanriðli Evrópukeppni U-20 landsliða í Evora í Portúgal árið 1993.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið