© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
13.9.2001 | 11:10 | bl
FIBA fordæmir hryðjuverk - Körfuknattleiksheimurinn agndofa
Alþjóðkörfuknattleilkssabandið, FIBA, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna ógnaratburðanna í Bandaríkjunum í fyrradag. Yfirlýsingin er svohljóðandi í íslenskri þýðingu:

FIBA fordæmir hryðjuverk - Körfuknattleikheimurinn agndofa og sormæddur.

FIBA er agndofa vegna atburðanna í Bandaríkunum í fyrradag og vottar bandarísku þjóðinni sína dýpstu samúð. Það er á stundum sem þessum, þegar við stöndum frammi fyrir slíkum grimmdarverkum, að við áttum okkur á því hvað íþróttirnar eru í raun léttvægar.

Borisalv Stankovic, framkvæmdastjóri FIBA, hefur haft samband við Tom Jernstedt forseta bandaríska körfuknattleikssambandsins, David Stern yfirmann NBA og Ted Boehm formann undirbúningsnefndar heimsmeistarakeppninnar í Indianapolis á næsta ári og komið á framfæri við þá samúðarkveðjum og bænarorðum frá allri körfuknattleiksfjölskyldunni.

Hjá FIBA hafa átt sér stað umræður um að fresta Ameríkukeppni kvenna sem nú fer fram í Brasilíu og Evrópukeppni kvenna sem á að hefjast í Frakklandi á morgun. Eftir miklar vangaveltur hefur verið ákveðið að báðar þessar keppnir skuli fara fram samkvæmt áætlun.

Þótt FIBA finni til með þeim sem eiga um sárt að binda í Bandaríkjunum, þá þjónar frestun íþrótta og menningaratburða tilgangi hryðjuverkamanna, sem er að valda eins mikilli röskun og skaða og möguleg er á líf okkar allra.

Einnar mínútu þögn verður fyrir hvern leik í Evrópukeppni kvenna á morgun og úrslitaleik Ameríkukeppninnar í virðingarskini við fórnarlömb hryðjuverkanna.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Þessir kappar ákváðu með 4 tíma fyrirvara að skella sér á stjörnuleikinn í NBA-deildinni árið 2001, en leikurinn fór þá fram í Washington. Frá vinstri Ólafur Þór Jóhannsson varaformaður KKÍ, Pétur Hrafn Sigurðsson framkvæmdastjóri KKÍ og Friðrik Ingi Rúnarsson landsliðsþjálfari. Myndin tók fjórði ferðalangurinn, Björn Leósson mótastjóri KKÍ.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið