© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
4.9.2001 | 16:05 | bl
Dómaranámskeið framundan
Dómaranámskeið verður haldið á vegum KKÍ og HSK dagana 17., 18. og 20. september nk. Námskeiðið verður haldið í Tíbrá, félagsheimili Umf. Selfoss og hefst umrædda daga kl. 18:30.
Námskeiðinu lýkur með skriflegu prófi og þeir sem standast það fá fullgilt dómaraskírteini.

Þau félög sem taka þátt í Íslandsmótum og héraðsmótum verða
að hafa dómara í sínum röðum með próf og því er nauðsynlegt að félögin sendi fólk á námskeiðið. Umsjónarmenn með námskeiðinu að hálfu KKÍ verða úrvaldsdeildardómararnir Jón Bender og Rúnar Gíslason. Þátttökugjald verður kr. 4.000 á mann
.
Skráningar á námskeiðið verða að berast til skrifstofu HSK fyrir kl. 16:00 fimmtudaginn 13. september nk. Netfangið er hsk@hsk.is og sími 482 1189. Það er von körfuknattleiksnefndar HSK og dómaranefndar KKÍ að þátttaka verði góð og það eru allir
velkomnir.

Helgina 28.-30. september verða haldin þrjú námskeið til viðbótar. Þau verða í Reykjavík, á Akureyri og á Ísafirði. Þátttökugjald á þau námskeið verður einnig kr. 4.000 og er skráning á þau hjá KKÍ. Einnig verður skráning hjá Þór vegna námskeiðsins á Akureyri og hjá KFÍ vegna námskeiðsins á Ísafirði.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Signý Hermannsdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins, fær hér smá aðstoð frá liðsfélaga sínum Rögnu Margréti Brynjarsdóttur. Stelpurnar voru í Amsterdan að fara etja kappi við Holland. Hver mínúta er  greinilega nýtt í undirbúning.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið