© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
13.2.2009 | 9:43 | FÍR
1. deild karla og kvenna í kvöld
Í kvöld eru fjórir leikir á dagskrá í 1.deild karla og einn í 1.deild kvenna.

Í dag föstudag verður mikið um að vera í 1. deild karla en í kvöld munu fjórir leikir fara fram í öllum landshlutum. Einn leikur er svo í 1. deild kvenna. Þrír leikir hefjast kl 19.15 í kvöld hjá körlunum.

Á Egilsstöðum mætast Höttur og Valur. Höttur er fyrir leikin í næst neðsta sæti deildarinnar með 4 stig en Valur með 18.

Hrunamenn taka á móti toppliði Hamars á Flúðum.

Á Ísafirði eigast við KFÍ og Þór Þorlákshöfn í mikilvægum leik um sæti í úrslitakeppninni. KFÍ hefur 4 stiga forskot á Þór fyrir leikinn.

Að lokum munu Haukar og Fjölnir eigast við í Hafnarfirði en sá leikur hefst aðeins fyrr en hinir leikirnir, eða kl 19.00.

Valur, Fjölnir og Haukar eru öll með 18 stig í 2-4 sæti og KFÍ kemur með 16 þar á eftir. Það er því ljóst að baráttan um heimaleikjaréttinn og síðasta sætið í úrslitakeppninni er gríðarlega hörð en eftir þessa umferð eru aðeins fjórir leikir eftir í deildinni.

Í 1.deild kvenna mætast Þór og Njarðvík á Akureyri klukkan 20:00 en þessi lið mætast svo aftur á Akureyri á morgun klukkan 15:30.

Báðir leikir Þórs og Njarðvíkur fara fram í Síðuskóla.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá leik UMFN og Hauka í Njarðvík árið 1983.  Kristinn Kristinsson og Ingimar Jónsson í uppkasti.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið