S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
||
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
30.1.2009 | 15:00 | Kristinn | Mótahald
Skipting Iceland Express-deildar kvenna: A og B riðlar
Keppni er hafin eftir að deildinni var skipt í efri og neðri hluta
Í seinni hlutanum er liðunum skipt í tvo riðla, A (efri) og B (neðri). Liðin í A-riðli eru: Haukar Keflavík Hamar KR B-riðill: Valur UMFG Snæfell Fjölnir Núna munu liðin leika innbyrðis heima og að heiman innan riðlanna sem þýðir að hvert lið leikur sex leiki. Þrjá á heimavelli og þrjá útivelli. Liðin taka öll stig með sér úr fyrri umferðum og því hefja þau leik með þau stig sem þau eru nú þegar búin að vinna sér inn. Lokaumferðin er miðvikudaginn 25. febrúar en að henni lokinni hefst úrslitakeppni. Í úrslitakeppninni munu efstu tvö lið A-riðils sitja hjá í fyrstu umferð en þá mætast liðin í 3. sæti í A-riðli og 2. sæti í B-riðli og 4.sætið í A-riðli og 1.sæti í B-riðli. Þessi lið leika upp á það að fara áfram og mæta tveimur efstu sætunum úr A-riðlinum. Sigra þarf tvo leiki til að fara áfram. Leikjaniðuröðunin á vefnum er að finna tölfræðivefnum kki.is/live og hægt er að smella hér til að skoða hana og einnig á kki.is/mot. |