© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
30.8.2001 | 11:05 | bl
Sviss og Írland komin áfram
Eftir tap íslenska landsliðsins gegn því svissneska, 62-79, í Njarðvík í gær er ljóst að Svisslendingar eru komnir áfram í undanúrslitakeppni Evrópumótsins. Írar fylgja þeim upp úr riðlinum eftir sigur á Finnum í Helsinki í gær, 81-84. Þessi úrslit koma mjög á óvart og endurspegla hvað þessi riðill var í raun sterkur.

Leikurinn gegn Svisslendingum var ekki vel leikinn að hálfu íslenska liðsins, sem t.d. gerði aðeins 11 stig í fyrsta fjórðungi. Í lok þriðja leikhluta náði íslenska liðið aðeins að velgja Svisslendingum undir uggum með því að minnka muninn í 12 stig, en gestirnir svöruðu fyrir sig og bættu í undir lokin og unnu öruggan sigur.

Logi Gunnarsson var stigahæstur í íslenska liðinu með 24 stig, (9-8, 6-1 og 6-5 í skotum, 4 fráköst, 3 stolnir og 2 varin), og þeir Friðrik Stefánsson (6 fráköst og 2 varin) og Helgi Jónas Guðfinnsson (3-1, 5-2, 2-2 í skotum) komu næstir með 10 stig hvor.

Síðasti leikur Íslands í riðlinum verður gegn Írum á laugardaginn kemur kl. 16:30 í Njarðvík.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Stefán Karl Stefánsson leikari er hér í gervi
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið