S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
28.8.2001 | 15:35 | bl
Guðlaugur og Magnús í landsliðshópinn
Friðrik Ingi Rúnarsson hefur kallað þá Guðlaug Eyjólfsson UMFG og Magnús Þór Gunnarsson Keflavík inní landsliðshópinn fyrir leikina gegn Svisslendingum og Írum. Sigurður Þorvaldsson ÍR sem var í hópnum gegn Finnum á laugardaginn og er áfram í hópnum. Þessir leikmenn koma í stað þeirra Fannars Ólafssonar og Sævars Sigurmundssonar sem farnir eru til náms í Bandaríkjunum.
Leikurinn gegn Sviss verður í Njarðvík á morgun kl. 20, en leikið verður gegn Írlandi á laugardaginn kl. 16:30 í Njarðvík. Við þessar breytingar lækkar meðalhæð íslenska liðsins um tæpa 3 sm. og er 194,7 sm. Meðalaldur liðsins er sem fyrr 22 ár. Ísland og Sviss hafa mæst fimm sinnum áður á körfuknattleiksvellinum. Einu sinni hefur Ísland haft betur, en Sviss fjórum sinnum. Sigurleikurinn var í fyrsta landsleik þjóðanna á EM í Svíðþjóð 1981, 90-83. Allir leikir þessara þjóða hafa verið jafnir og spennandi og síðast þegar þjóðirnar mættust sigruðu Svisslendingar 69-72. Það var á æfingamóti í Lúxemburg 1999. |