© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
25.8.2001 | 17:49 | phs
Ísland tapaði fyrir Finnum
Íslenska landsliðið mætti Finnum í síðari leik liðanna í undankeppni Evrópumóts landsliða í dag í Finnlandi og lauk leiknum með sigri Finna sem gerðu 97 stig gegn 66 stigum Íslands.

Finnska liðið yfirspilaði íslenska liðið í fyrri hálfleik og náði þrjátíu stiga forskoti. Íslenska liðið lék illa í fyrri hálfleik og komst aldrei í takt við leikinn. Staðan í hálfleik var 54-26 Finnum í vil og var Friðrik Ingi Rúnarsson landsliðsþjálfari allt annað en ánægður með leik sinna manna. Í síðari hálfleik var allt annað að sjá til liðsins og lék liðið skínandi körfubolta á stundum. Það dugði þó skammt og þrjátíu stiga tap gegn Finnum er staðreind.

Jón Arnór Stefánsson var yfirburðamaður í íslenska liðinu í þessum leik. Gerði 19 stig, tók 5 fráköst, var með 4 stolna bolta og 3 stoðsendingar. Páll Kristinsson kom sterkur inn í liðið í síðari hálfleik og gerði öll sín 14 stig í hálfleiknum. Herbert Arnarson gerði 9 stig en aðrir minna.

Íslenska liðið á eftir tvo heimaleiki í riðlinum. Leikið verður gegn Sviss í Njarðvík á miðvikudaginn kl. 20.00 og gegn Írum á laugardaginn kl. 16.30, einnig í Njarðvík.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Úrvalslið Iceland Express-deildarinnar í seinni hlutanum tímabilið 2008-2009.

Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir, KR var valin dugnaðarforkuinn er lengst til vinstri, Pálína Gunnlaugsdóttir, Keflaví, Slavica Dimovska, Haukum sem var jafnframt valin Besti leikmaðurinn í seinni umferðinni, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir, KR og Signý Hermannsdóttir, Val. Birna Valgarðsdóttir var fjarverandi myndatökuna.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið