© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
 
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
14.1.2009 | 12:30 | Kristinn | Mótahald
Örfá sæti laus á Póstmót Breiðabliks
Leikmenn Þórs frá Akureyri á Póstmótinu í fyrra
Enn eru örfá sæti laus á hið árlega Póstmót Breiðabliks sem haldið verður helgina 24. janúar - 25. janúar næstkomandi. Mótið hefur fest sig í sessi sem eitt af stærstu körfuboltamótum landsins fyrir yngstu iðkendurna en það er ætlað stelpum og strákum á aldrinum 6 - 11 ára.

Leikið verður í sex aldursflokkum. Í 1. - 2. bekk er leikið 4 á móti 4 en í 3. - 6. bekk 5 á 5. Leikgleðin og ánægjan er í fyrirrúmi á Póstmótinu og fá allir þátttakendurnir skemmtilegan glaðning að móti loknu.

Skráning er til 15. janúar á netfangið postmotid@breidablik.is Verð er 1.500 kr. á hvern keppanda.

Allar nánari upplýsingar veitir Pétur Hrafn í síma 897 0714 og á netfanginu
petur@getraunir.is.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Þórir Magnússon leikmaður KFR var mikil langskytta. Hér er hann um það bil að hleypa af og Kolbeinn Pálsson leikmaður KR er aðeins of seinn til varnar.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið