S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
13.8.2001 | 9:10 | bl
Ísland á von þrátt fyrir tap gegn Spáni
Ísland og Spánn kepptu á Evrópumóti unglinga á León á Spáni á laugardag. Leikurinn byrjaði vel og í fyrsta fjórðungi stóðum við vel í Spánverjunum, en síðan gekk ekkert upp á móti mjög sterku liði Spánverja, sem er líklega langsterkasta liðið í þessum riðli. Leiknum lauk með 110-48 sigri Spánverja.
Stig Íslands skoruðu: Þorleifur 10, Fannar 8, Sveinbjörn 7, Kristinn 6, Magnús, Sævar og Kjartan 4 hver, Birkir 3 og Jón Brynjar 2. Ólafur Aron var hvíldur í leiknum þar sem hann snéri sig á ökkla á æfingu. Nú bíðum við bara eftir leiknum gegn Finnlandi sem er á sunnudag, en með sigri á Finnum með 4 stigum eða meira getum við komist áfram í keppninni. Páll Briem Magnússon fararstjóri íslenska hópsins í Léon |