© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
9.12.2008 | 14:30 | Kristinn | Mótahald
Firmamót Vals milli jóla og nýárs
Valur heldur sitt árlega firma- og félagamót 27. desember
Hin árlega Firma- og félagakeppni Vals verður að þessu sinni haldin laugardaginn 27. desember 2008.

Leikið verður í Vodafonehöllinni að Hlíðarenda. Leikið verður á tveimur leikvöllum samtímis utan úrslitaleiksins sem verður leikinn á aðalvellinum. Sigurvegarar fá bikar í verðlaun og auk þess verða gullverðlauna „peningar“ að vanda.

Leikið verður að mestu eftir venjulegum körfuboltareglum, nema leikurinn verður 2 X 12 mínútur, og klukkan aðeins stöðvuð síðustu 2 mínúturnar í leiknum. Til að tefja leikinn sem minnst í vítaskotum verður aðeins tekið eitt skot, sem gildir 1, 2 eða 3 stig eftir atvikum.

Mótið er eingöngu ætlað leikmönnum 20 ára og eldri og ekki heimilt að hafa leikmenn úr liðum í 1. deild eða Iceland Express-deildinni.

Þátttökugjald er 20.000 kr. fyrir hvert lið, sem greiðist í síðasta lagi fyrir fyrsta leik liðs. Innifalið í gjaldinu eru veitingar í VIP-Salnum að Hlíðarenda.

Þátttökutilkynningar berist sem fyrst til undirritaðra, sem einnig gefa upplýsingar um hvernig hægt er að greiða þáttökugjöld

Með bestu kveðju,

Torfi Magnússon
tm@ismennt.is
Sími: 661-8012

Hannes Birgir Hjálmarsson
hbh@talnet.is
Sími: 697-5999

Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
A-landslið karla á afmælismóti Danska körfuknattleikssambandsins í Kaupmannahöfn í desember 1996.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið