© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
27.11.2008 | 11:45 | FÍR
Ágúst valdi átta nýliða í 30 manna landsliðshóp
A-landslið kvenna síðasta sumar. Mynd:OOJ
Ágúst Björgvinsson, A-landsliðsþjálfari kvenna, er þegar byrjaður að huga að komandi landsliðssumri og hefur hann nú valið 30 manna landsliðshóp sem mun hittast milli jóla og nýárs og fara yfir æfingaplan og verkefni landsliðsins á næsta ári. Þetta er annað ár Ágústs með kvennalandsliðið. Átta nýliðar eru í hópnum að þessu sinni en í fyrrasumar léku fimm leikmenn sinn fyrsta landsleik undir stjórn Ágústar.

Nýliðarnir að þessu sinni eru Íris Sverrrisdóttir og Helga Rakel Hallgrímsdóttir úr Grindavík, Guðbjörg Sverrirsdóttir og Telma Björk Fjalarsdóttir úr Haukum, Hafrún Hálfdánardóttir og Íris Ásgeirsdóttir úr Hamri, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir úr KR og Hrönn Þorgrímsdóttir úr Keflavík. Helga Rakel, Íris Ásgeirsdóttir og Hrönn eru að koma inn í A-landsliðshóp í fyrsta sinn en allar hinar hafa verið valdar í úrtakshóp áður.

Fjórir leikmenn í hópnum eru að leika erlendis. Þær Helena Sverrisdóttir, María Ben Erlingsdóttir og Margrét Kara Sturludóttir eru allar á fullu í háskólaboltanum í Bandaríkjunum og Unnur Tara Jónsdóttir er að spila með Salama, í bænum Vaasa Finnlandi.

Reyndasta landsliðskona Íslands frá upphafi, Birna Valgarðsdóttir, er aftur komin í landsliðið eftir barnseignafrí og meiðsli en Hildur Sigurðardóttir er nú sjö leikjum á eftir henni á listanum yfir flesta A-landsleiki. Birna hefur leikið 68 leiki en hún hefur ekki verið með í síðustu tólf leikjum eftir að hafa spilað alla 67 A-landsleiki kvenna frá 1995 til 2006.

Birna er ein af fjórum Keflvíkingum sem snúa nú aftur í landsliðið eftir hlé en hinar eru Bryndís Guðmundsdóttir (krossbandaslit), Svava Ósk Stefánsdóttir (barnseignarfrí) og Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir. Bryndís er ekki komin af stað eftir meiðslin en verður vonandi farin að spila af fullum krafti í vor.

Framundan eru meðal annars fimm leikir í Evrópukeppninni í haust en þá lýkur þesssari keppni sem hófst með fimm leikjum í haust. Þrír af fimm leikjum liðsins í Evrópukeppninni í ágúst verða á heimavelli en Holland, Írland og Svartfjallaland koma þá til Íslands en íslenska liðið sækir síðan Sviss og Slóveníu heim í hinum tveimur leikjunum.

Landsliðshópur A-landsliðs kvenna í desember 2008:

Leikstjórnendur
Hildur Sigurðardóttir, KR - 61 leikur/327 stig
Helena Sverrisdóttir, Haukar/Texas Christian University, Bandaríkjunum - 30 leikir/495 stig
Ingibjörg Jakobsdóttir, Grindavík - 9 leikir/6 stig
Íris Sverrrisdóttir, Grindavík Nýliði

Skotbakverðir
Kristrún Sigurjónsdóttir, Haukar - 17 leikir/86 stig
Pálína Gunnlaugsdóttir, Keflavík - 15 leikir/88 stig
Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir, Keflavík - 12 leikir/21 stig
Ólöf Helga Pálsdóttir, Grindavík - 3 leikir/0 stig
Guðrún Ósk Ámundarsdóttir, KR - 1 leikur/2 stig
Jóhanna Björk Sveinsdóttir, Hamar - 1 leikur/0 stig
Hrönn Þorgrímsdóttir, Keflavík Nýliði
Íris Ásgeirsdóttir, Hamar Nýliði
Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir, KR Nýliði

Litlir framherjar
Birna Valgarðsdóttir, Keflavík - 68 leikir/603 stig
Petrúnella Skúladóttir, Grindavík - 15 leikir/38 stig
Svava Ósk Stefánsdóttir, Keflavík - 15 leikir/31 stig
Þórunn Bjarnadóttir, Val - 14 leikir/14 stig
Jovana Lilja Stefánsdóttir, Grindavík - 10 leikir/5 stig
Margrét Kara Sturludóttir, Keflavík/Elon University, Bandaríkjunum - 9 leikir/15 stig
Guðbjörg Sverrirsdóttir, Haukum Nýliði

Stórir framherjar
Bryndís Guðmundsdóttir, Keflavík (meidd) - 13 leikir/25 stig
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir, KR - 12 leikir/38 stig
Helga Einarsdóttir, KR - 4 leikir/2 stig
Unnur Tara Jónsdóttir,Salama Vaasa, Finnlandi - 3 leikir/4 stig
Hafrún Hálfdánardóttir, Hamar Nýliði
Helga Rakel Hallgrímsdóttir, Grindavík Nýliði
Telma Björk Fjalarsdóttir, Haukar Nýliði

Miðherjar
Signý Hermannsdóttir, Val - 53 leikir/447 stig
María Ben Erlingsdóttir, Keflavík/University of Texas-Pan American, Bandaríkjunum - 23 leikir/78 stig
Ragna Margrét Brynjarsdóttir, Haukar - 9 leikir/6 stig
Fanney Lind Guðmundsdóttir, Hamar - 3 leikir/3 stig

Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Starfsmenn ritaraborðs á fjórða leik KR og Njarðvíkur í úrslitum Iceland Express deildarinnar 2007. Pétur Hrafn Sigurðsson, aþjóðlegur eftirlitsdómari, er tilbúinn með flautuna.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið