© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
         
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
27.11.2008 | 8:43 | FÍR
Nýir þjálfarar á yngri landslið stúlkna
Margrét Sturlaugsdóttir nýr þjálfari U-18 kvenna
Stjórn KKÍ hefur ráðið tvo nýja þjálfara á yngri landslið stúlkna.

Margrét Sturlaugsdóttir frá Keflavík hefur verið ráðin þjálfari U-18 kvenna. Margrét sem er fyrrverandi landsliðskona hefur þjálfað yngri flokka stúlkna í Keflavík síðustu árin með frábærum árangri. U-18 kvenna fer á Norðurlandamót í vor.

Jón Halldór Eðvaldsson frá Keflavík sem er núverandi þjálfari Íslands og bikarmeistara meistaraflokks kvennaliðs Keflavíkur hefur verið ráðinn þjálfari stúlkna sem eru fæddar 1994 eða síðar. Fyrsta verkefni þeirra verður Norðurlandamót vorið 2010.

Auk þessara nýju aðila þjálfar Yngvi Gunnlaugsson U-16 stelpur sem eru fæddar 1993 eða síðar. U-16 stúlkna fer á Norðurlandamót í vor.


Allir hóparnir verða kallaðir saman til æfinga í jólafríinu. Nánari tíma- og staðsetningar koma síðar.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Piltalandslið Íslands sem varð Norðurlandameistar í Stykkishólmi vorið 1991. Aftari röð frá vinstri: Jón Arnar Ingvarsson Haukum, Sigfús Gizurarson Haukum, Benedikt Sigurðsson KR, Hjörtur Harðarson Keflavík, Jón B. Stefánsson Keflavík, Sigurður Jónsson KR og Jón Sigurðsson þjálfari. Fremri röð frá vinstri: Eggert Garðarsson ÍR, Bragi Magnússon Haukum, Hermann Hauksson KR, Birgir Guðfinnsson Keflavík og Marel Guðlaugsson Grindavík. Nökkvi Már Jónsson var einnig í sigurliðinu.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið