© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
18.11.2008 | 11:30 | Kristinn | FIBA
Fundur sambandanna á Norðurlöndunum
Norðurlandasamböndin funduðu um síðustu helgi
Síðastliðna helgi fór fram árlegur fundur körfuknattleikssamabandanna á Norðurlöndunum og var fundurinn haldinn hér í Reykjavík. Fulltrúar KKÍ á fundinum voru þeir Hannes S. Jónsson formaður og Friðrik Ingi Rúnarson framkvæmdastjóri. Ólafur Rafnsson forseti ÍSÍ var einnig á fundinum að hluta en hann situr í stjórn FIBA-Europe.

Noðurlandaþjóðirnar hafa unnið mjög vel saman á alþjóðlegum vettvangi körfuboltans og hefur þessi samvinna mikla og góða þýðingu fyrir Ísland , margt er líkt með þessum löndum en einnig margt ólíkt og því geta þjóðirnar lært mikið af hverri annarri.

Staðan á Norðurlandamótunum:

Norðurlandamótin í körfubolta er stór þáttur í þessari norrænu samvinnu en Noðurlandamót A-landsliðanna fara fram fjórða hvert ár en Norðurlandamót yngri landsliða á hverju ári.

Það var árið 2003 sem Norðurlandamót yngri landsliða fór að vera á hverju ári á sama stað í Solna í Svíþjóð á sama tíma hjá 16 ára og 18 ára landsliðum stúlkna og drengja. Allar þjóðirnar eru sammála um að það sé komin góð reynsla á þetta mót hjá yngri landsliðunum og er mikil ánægja hjá öllum með þetta fyrirkomulag.

Er kominn tími á nýtt keppnisfyrirkomulag í Evrópukeppnum landsliða?

Allmörg lönd í Evrópu hafa undanfarin ár rætt það sín á milli að gera þurfi breytingu á keppnisfyrirkomulagi A-landsliðanna og hafa norðurlandaþjóðirnar farið fremstar í þessari umræðu þrátt fyrir að Finnland og Svíþjóð hafa verið sem A-Deild keppninnar eru þær á því að þetta fyrirkomulag sé rangt.

Körfuknattleikur er ein af vinsælli og stærstu íþróttagreinum heimsins en bæði FIBA og FIBA-Europe mega standa sig mun betur í því að hugsa um minni og meðalstórar þjóðar og þá sérstklega þegar horft er til landsliðanna.

Stór hluti fundarins nú um helgina fór í umæður um A-landsliðin og hvernig Norðurlöndin sjá nýtt keppnisfyrirkomulag fyrir sér sem hægt væri að hefja keppni í eftir 3-4 ár. Rætt er um að færa Evrópkukeppni landsliða nær því fyrirkomulagi sem knattspyrnan hefur í dag og fá fleiri leikdaga fyrir landsliðin yfir árið. Norðurlöndin ætla að kynna sínar hugmyndir á næstu mánuðum fyrir fleiri þjóðum álfunnar og stefna að því taka málefni landsliðanna til umræðu á næsta ársþingi FIBA-Europe sem haldið verður í maí næstkomandi í Frakklandi.

Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá Smáþjóðaleikunum á Möltu 1993.  Guðmundur Bragason í leik gegn Luxedmbourg.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið