S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
8.11.2008 | 22:03 | FÍR
Hvernig gengur Josh Childress hjá Olympiacos?
Ekki vegna þess að það hafi aldrei gerst áður að bandarískur leikmaður fari úr NBA deildinni til Evrópu því það hefur gerst áður en leikmenn eins og Bob Mcadoo, Orlando Woolridge og Dominique Wilkins svo einhverjir séu nefndir reyndu fyrir sér í Evrópu á árum áður þegar ferill þeirra var nánast á enda í NBA. Josh Childress tilheyrir ekki þessum hópi þar sem hann var talinn einn af efnilegri leikmönnum NBA deildarinnar og spilaði hann mjög stórt hlutverk hjá Atlanta þrátt fyrir að koma oftast inn af varamannabekk. Hann var t.d. með um 11 stig á leik sl. tímabil. Þessi ákvörðun leikmannsins kom forráðamönnum NBA liða á óvart og einnig má segja að margir hafi klórað sér í kollinum meðal bandarískra áhugamanna um körfubolta. Landslið Evrópu voru farin að vinna bandaríska landsliðið reglulega á stórmótum og nú væru evrópsku félagsliðin farin að stela ungum upprennandi stjörnum frá NBA liðunum. Josh Childress lét til skarar skríða og skrifaði undir samning við gríska stórliðið Olympiacos sem hefur verið eitt af betri liðum Grikklands síðstu áratugi en körfubolti er gríðarlega vinsæll í Grikklandi. Liðið er einnig nánast með ásrift að þátttöku í Meistaradeild Evrópu. Childress er með um 17 stig á leik í grísku deildinni sem af er og hefur liðið unnið alla sína leiki. Nærmynd af Josh Childress í Meistaradeild Evrópu |