© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
     
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
17.10.2008 | 11:23 | Kristinn | Mótahald
Breiðablik býður frítt á leikinn í kvöld
Nýja gólfið í Smáranum er stórglæsilegt
Kópavogsbær og körfuknattleiksdeild Breiðabliks bjóða Kópavogsbúum frítt á fyrsta leik Breiðabliks í Iceland Expressdeildinni gegn Skallagrími úr Borgarnesi. Leikurinn fer fram í kvöld, föstudag og hefst kl. 19.15. Tilefnið er 40 ára afmæli körfuknattleiksdeildarinnar og vígsla á nýju glæsilegu gólfi í Smáranum.

Fyrir leikinn mun Gunnar Birgisson, bæjarstjóri flytja stutt ávarp og vígja gólfið með formlegum hætti.

Í vor var hafist handa við að leggja nýtt og stórglæsilegt parket í Smáranum. Þeirri vinnu lauk síðsumars og er óhætt að fullyrða að íþróttahúsið hafi tekið algerum stakkaskiptum og er nú með þeim glæsilegri á landinu.

Breiðablik og Skallagrímur mæta nokkuð breytt til leiks í ljósi aðstæðna í íslensku efnahagslífi. Erlendum leikmönnum hefur fækkað mikið hjá öllum félögum í Iceland Expressdeildinni og verður því afar fróðlegt að sjá hvernig nýliðum Breiðabliks mun reiða af í hópi þeirra bestu.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
UMFN og KR mættust í Bikarúrslitaleiknum í 10. flokki karla 2008 á Bikarúrslitahelginni sem haldin var í Keflavík. UMFN vann 77-53 og var Valur Orri Valsson sem er hér til vinstri valin maður leiksins. Með honum að taka við bikarnum er Oddur Birnir Pétursson en þeir eru fyrirliðar Njarðvíkur. Feður þeirra beggja, Valur og Pétur, léku lengi með Njarðvík á sínum yngri árum.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið