© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
 
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
17.9.2008 | 8:20 | OOJ | Landslið
Sigurður Gunnar hefur ekki tapað landsleik í Höllinni
Sigurður Gunnar verður í eldlínunni í kvöld. Mynd: SÖA
Miðherjinn ungi Sigurður Gunnar Þorsteinsson er að stíga sín fyrstu skref með A-landsliðinu og mun leika sinn ellefta landsleiká móti Svartfellingum í kvöld. Það mætti halda að Sigurður Gunnar væri happaleikmaður fyrir A-landsliðið því síðan að hann hefur komið inn í liðið þá hefur Ísland ekki tapað í Laugardalshöllinni. Fram að því hafði liðið tapað öllum leikjum sínum í Höllinni í níu ár.

Það reynir vissulega á bæði Sigurð og áhrifamátt hans í kvöld þegar karlalandsliðið tekur á móti Svartfellingum í Laugardalshöllinni í síðasta heimaleik sínum í haust. Sigurður Gunnar fær örugglega tækifæri til að glíma við hina hávöxnu leikmenn Svartfellinga en það er nóg af þeim í boði. Leikurinn hefst klukkan 19.15

Sigurður sem er 20 ára og 203 cm á hæð kemur frá Ísafirði en spilar með Íslandsmeisturum Keflavíkur þar sem hann var kosinn besti ungi leikmaðurinn í Iceland Express deildinni á síðasta tímabili eftir að hafa verið með 6,9 stig og 5,5 fráköst á 16,6 mínútum að meðaltali í deildarkeppninni. Sigurður skoraði síðan jafnmörg stig í leik (6,9) í úrslitakeppninni.

Það er gaman að bera saman byrjun ferils Sigurðar við byrjun hins gamalreynda Friðriks Stefánssonar sem þurfti að bíða í áratug eftir að vinna landsleik í Laugardalshöllinni. Friðrik vann sinn fyrsta landsleik í Höllinni í þrettándu tilraun þegar Ísland vann Georgíu í Evrópukeppninni í fyrra. Jón Arnór Stefánsson vann einnig sinn fyrsta landsleik í Höllinni á móti Dönum fyrir viku síðan en hann var þá á að leika sinn sjötta A-landsleik í Laugardalshöll.

Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Leikmenn A-landsliðs karla hlýða á þjóðsöng Íslands fyrir leik liðsins gegn Finnlandi 6. september 2006.  Frá vinstri: Magnús Þór Gunnarsson, Friðrik Stefánsson, Jakob Sigurðarson, Jón Nordal Hafsteinsson, Egill Jónasson, Jón Arnór Stefánsson, Páll Axel Vilbergsson, Brenton Birmingham, Fannar Ólafsson, Hlynur Bæringsson, Logi Gunnarsson og Helgi Már Magnússon.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið