© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
12.9.2008 | 12:00 | Kristinn | Landslið
Páll Axel og Logi báðir komnir með 101 þrist
Fannar í baráttunni í síðasta leik
Þeir félagar Páll Axel Vilbergsson og Logi Gunnarsson settu báðir 2 þrista niður í leiknum gegn Danmörku á miðvikudaginn og fóru því báðir úr 99 skoruðum þristum í 101 þriggja stiga körfur fyrir landsliðið.

Íslenska liðið fór í morgun út til Hollands en leikið er gegn Hollendingum á morgun kl 17:30 að íslenskum tíma og það verður hægt að fylgjast með leiknum í beinni textalýsingu á FIBAeurope.com á netinu.

Miðasala er hafin á næsta heimaleik, en sá leikur er gegn Svartfjallalandi í Höllinni kl 19:15 á miðvikudaginn kemur. Hægt er að kaupa miða í forsölu á 1.500 kr. hér á midi.is og svo einnig á 1.700 kr. á leikdag í Höllinni.

Það var frábær stemmning á pöllunum í síðasta leik gegn Dönum og Fannar Ólafsson sagði í viðtali við karfan.is að það hefði skilað sér til þeirra inn á völlinn sá stuðningur sem landsliðsmennirnir fengu.

Því hvetjum við alla til að mæta á leikinn og styðja strákana okkar í næsta leik sem verður án efa frábær skemmtun eins og síðasti leikur var. Lið Svartfjallalands er feiki sterkt og við erum að spila við þá í fyrsta sinn.

Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Átján ára lið Íslands mætti Kuwait í æfingaleik sumarið 2009 þegar lið Íslands tók þátt í B-deild Evrópukeppninnar. Keppt var í Sarajevó ó Bosníu. Kuwait var þarna í æfingaferð og léku liðin æfingaleik. Ísland vann öruggan sigur 103-40.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið