© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
10.9.2008 | 15:00 | Stefán
Fyrsti landsleikur Jóns Arnórs á heimavelli í tvö ár
Jón Arnór Stefánsson verður með íslenska liðinu í kvöld mynd: SÞB
Jón Arnór Stefánsson spilar í kvöld sinn fyrsta heimaleik í tvö ár eða síðan að hann meiddist eftir aðeins nokkrar mínútur á móti Lúxemborg í Keflavík 13. september 2006. Jón Arnór tók ekki þátt í leikjum landsliðsins í fyrra, var upptekin með Roma í úrslitakeppninni þegar liðið var Smáþjóðaleikana í upphafi sumars og fékk síðan að leyfi til þess að einbeita sér að undirbúningstímabilinu með Roma þegar leikirnir í Evrópukeppninni fóru fram síðasta haust.

Jón Arnór hefur þegar leikið tvo landsleiki á þessu ári auk eins leiks á móti háskólaliði. Allir þessir leikir voru á æfingamótinu á Írlandi á dögunum. Þar skoraði Jón Arnór 11 stig og gaf 5 stoðsendingar á 23 mínútum í tapleik á móti Póllandi en fann sig síðan ekki eins vel í sigurleik á móti Írum þar sem hann var aðeins með fimm stig og 1 stoðsendingu á 32 mínútum.

Leikurinn í kvöld verður fimmtándi landsleikur Jóns Arnórs á heimavelli þar af sá sjötti í Laugardalshöllinni. Aðeins fjórir af þessum fimmtán heimaleikjum Jóns Arnórs hafa komið á síðustu sjö árum.Jón Arnór á líka enn eftir að fagna sigurleik með landsliðinu í Höllinni en hann kemur vonandi á móti Dönum í kvöld. Jón Arnór hefur skorað 10,1 stig að meðaltali í þessum fjórtán heimaleikjum þar af 11,8 stig að meðaltali í fimm leikjum í Laugardalshöllinni.

Jón Arnór hefur alls leikið 42 landsleiki fyrir íslenska A-landsliðið og hann hefur skorað í þeim 492 stig eða 11,7 stig að meðaltali. Það er aðeins einn núverandi leikmanna landsliðsins sem hefur skorað fleiri stig að meðaltali í sínum landsleikjum en Logi hefur skorað 13,0 stig að meðaltali í sínum 63 landsleikjum.

Heimaleikir Jóns Arnórs fyrir íslenska landsliðið:
1.8.2000, Keflavík - Noregur (sigur) 9 stig
2.8.2000, Keflavík - Svíþjóð (tap) 17 stig
4.8.2000, Keflavík - Danmörk (sigur) 9 stig
5.8.2000, Keflavík - Finnland (tap) 8 stig
22.11.2000, Laugardalshöll - Úkraína (tap) 13 stig
29.11.2000, Laugardalshöll - Slóvenía (tap) 14 stig
24.1.2001, Laugardalshöll - Makedónía (tap) 11 stig
22.8.2001, Laugardalshöll - Finnland (tap) 12 stig
29.8.2001, Njarðvík - Sviss (tap) 6 stig
1.9.2001, Njarðvík - Írland (tap) 9 stig
19.9.2004, Keflavík - Rúmenía (sigur) 13 stig
3.9.2005, Keflavík - Danmörk (tap) 5 stig
6.9.2006, Laugardalshöll - Finnland (tap) 9 stig
13.9.2006, Keflavík - Lúxemborg (sigur) 6 stig

Landsliðsferill Jóns Arnórs 2000-2008:
2000 7 leikir - 76 stig (10,9 í leik)
2001 12 leikir - 137 stig (11,4 í leik)
2002 7 leikir - 87 stig (12,4 í leik)
2004 2 leikir - 26 stig (13,0 í leik)
2005 5 leikir - 65 stig (13,0 í leik)
2006 7 leikir - 85 stig (12,1 í leik)
2008 2 leikir - 16 stig (8,0 í leik)

Landsleikir Jóns Arnórs fyrir ákveðin félög:
KR 21 leikir - 229 stig (10,9 í leik)
Trier 7 leikir - 87 stig (12,4 í leik)
Pamesa Valencia 7 leikir - 85 stig (12,1 í leik)
Pompea Napoli 5 leikir - 65 stig (13,0 í leik)
Dynamo St. Petersburg 2 leikir - 26 stig (13,0 í leik)
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá Smáþjóðaleikunum á Möltu 1993.  Frá setningarathöfn leikanna.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið