© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
3.9.2008 | 8:50 | OOJ
Signý og Hildur voru nýliðar í síðasta Slóveníuleik
Hildur Sigurðardóttir og Signý Hermannsdóttir.
Íslenska kvennalandsliðið mætir liði Slóveníu í Evrópukeppninni í kvöld en leikurinn hefst klukkan 19.15 á Ásvöllum í Hafnarfirði. Þetta er þriðji leikur íslensku stelpnanna í keppninni og jafnframt síðasti heimaleikurinn en síðustu tveir leikir liðsins fara fram í Írlandi og í Svartfjallalandi.

Ísland hefur aðeins einu sinni mætt Slóveníu í A-landsliðum kvenna en sá leikur fór fram á æfingamóti í Lúxemborg (Spuerkeess cup) 9. maí 1999. Slóvenía vann þann leik með 24 stiga mun, 52-76. Alda Leif Jónsdóttir var þá stigahæst í íslenska liðinu með 14 stig, Anna María Sveinsdóttir skoraði 11 stig og þær Kristín Blöndal og Guðbjörg Norðfjörð voru með átta stig hvor.

Reyndustu leikmenn íslenska liðsins í dag, Signý Hermannsdóttir og Hildur Sigurðardóttir, voru þarna báðar að leika sinn þriðja landsleik og báðar í sinni fyrstu landsliðsferð. Signý og Hildur voru því í hlutverki nýliða í leiknum á móti Slóveníu í maímánuði fyrir níu árum en að þessu sinni mun þær stöllur leika 59. (Hildur) og 51. (Signý) landsleik sinn. Signý lék í 26 mínútur gegn Slóveníu fyrir rúmum átta árum og tók meðal annars 7 fráköst en Hildur skoraði 3 stig og tók 2 fráköst á þeim 7 mínútum sem hún spilaði í leiknum.

Ísland og Slóvenía hafa einnig mæst tvisvar sinnum í Evrópukeppni 16 ára liða kvenna. Ragna Margrét Brynjarsdóttir og Ingibjörg Jakobsdóttir, núverandi leikmann A-liðsins, voru með í báðum þessum leikjum og Jóhanna Björk Sveinsdóttir spilaði þann fyrri árið 2005. Slóvenski bakvörðurinn Nika Baric spilaði í báðum þessum leikjum en hún verður í stóru hlutverki hjá slóvenska liðinu í kvöld. Framherjinn Tjasa Gortnar, sem er einnig í leikmannahópnum hjá Slóveníu, var með í seinni leiknaum árið 2006.

Landsleikir kvennaliða Íslands við Slóveníu í gegnum tíðina:

A-lið
9.maí 1999, Spuerkeess cup í Lúxemborg, Ísland-Slóvenía 52-76

16 ára lið
22. júlí 2005 EM í Tallin, Eistlandi, Ísland-Slóvenía 26-94
6. ágúst 2006 EM í Jyvaskyla, Finnlandi, Ísland-Slóvenía 58-68
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Einar Matthíasson leikmaður KFR tekur skot á körfuna.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið