© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
2.9.2008 | 15:18 | Stefán
Körfuboltamót í Reykjanesbæ
Það verður mikil körfuboltaveisla í Reykjanesbæ
Tvö æfingamót fara fram í Reykjanesbæ um helgina í tengslum við hátíðina Ljósanótt.

Í Toyota-Höllinni verður fjögurra liða mót í karlaflokki og svo verður hraðmót í meistaraflokki kvenna sem fer fram í íþróttahúsi Keilis á Vallarheiði.

Mótið í Keflavík hefst fimmtudaginn 4. september en ásamt gestgjöfunum í Keflavík verða einnig Njarðvík, KR og Grindavík í mótinu. Opnunarleikur mótsins er viðureign KR og Grindavíkur sem hefst kl. 18:00. Leikið verður um sæti á föstudeginum.

Hægt er að sjá dagskrá mótsins hér.

Aðgangur að mótinu er ókeypis og í boði Reykjanesbæjar.

Keppt á Vallarheiði
Á föstudag hefst hraðmót sem kvennaráð Kkd. UMFN og Góður Kostur ehf. standa fyrir og fer það fram dagana 5.-6.september. Leikið verður í íþróttahúsi Keilis á Vallarheiði og hefst mótið kl. 17:00 á föstudeginum með leik Grindavíkur og Keflavíkur. Einnig eru í mótinu gestgjafarnir í Njarðvík ásamt Haukum, Fjölni, Val og KR.

Hægt er að sjá dagskrá mótsins hér og það kostar ekkert inná mótið.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Valsarinn Matthías E. Matthíasson í leik með Marquette háskóla á níunda áratug síðustu aldar.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið