© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
28.8.2008 | 15:00 | Stefán | Landslið
Helga Einarsdóttir lék sinn fyrsta landsleik gegn Sviss
Fyrirliðinn Signý stappar stálinu í Helgu rétt áður en hún kom inná í gær
KR-ingurinn Helga Einarsdóttir lék sinn fyrsta landsleik í sigrinum á móti Sviss í gær. Helga er af hinum margrómaða 1988-árgangi sem hefur skilað alls sex leikmönnum upp í A-landslið kvenna. Helga varð 95. landsliðskona Íslands frá upphafi og annar nýliðinn sem Ágúst Björgvinsson gefur tækifæri en Ragna Margrét Brynjarsdóttir lék sína fyrstu A-landsleiki á Norðurlandamótinu í Gentofte á dögunum.

Helga sló í gegn með KR á síðasta tímabili þar sem hún tók 7,1 frákast að meðaltali á aðeins 24,6 mínútum auk þess að skora 3,7 stig og gefa 1,0 stoðsendingu í leik. Helga bætti sig með hverjum leik í fyrra og hækkaði allar þessar tölur í úrslitakeppninni þar sem hún og KR-stelpurnar fóru alla leið í lokaúrslitin. Helga skoraði þar 4,1 stig, tók 10,3 fráköst og gaf 3,3 stoðsendingar að meðaltali í úrslitakeppninni í vor.


Helga lék lokamínúturnar í gærkvöldi

Helga er 20 ára og 185 sm framherji og er frá Sauðárkróki þar sem hún steig sín fyrstu spor í körfuboltanum. Helga kom suður árið 2005 og lék þá með ÍS. Hún meiddist síðan illa og missti fyrir vikið úr heilt tímabil. Helga hóf síðan að spila með KR síðasta haust með fyrrnefndum árangri.

Stelpur fæddar 1988 í A-landsliði kvenna:
Bryndís Guðmundsdóttir 13 leikir
Helga Einarsdóttir 1 leikur
Helena Sverrisdóttir 26 leikir
Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir 12 leikir
María Ben Erlingsdóttir 21 leikur
Sigrún Ámundadóttir 8 leikir
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Pétur Hrafn Sigurðsson framkvæmdastjóri KKÍ á skrifstofu sinni (líklega í kringum 1999).
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið