© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
27.8.2008 | 22:53 | Kristinn | Landslið
Sigur gegn Sviss
Pálína Gunnlaugsdóttir var lykilmaður í varnarleik Íslendinga Mynd: SÞB
Íslenska kvennalandsliðið vann í kvöld það svissneska á Ásvöllum 68-53.

Stelpurnar okkar skoruðu fyrstu körfuna en Sviss komst yfir með þriggjastiga körfu. Eftir það náði íslenska liðið forystunni og lét hana ekki af hendi. Þær svissnesku jöfnuðu leikinn tvisvar en í stöðunni 26-26 í fyrri hálfleik small vörnin hjá íslenska liðinu og litu aldrei til baka eftir það.

Helena Sverrisdóttir átti fínan leik og var með tvöfalda tvennu, 25 stig, 10 fráköst og gaf 7 stoðsendingar að auki. Kristrún Sigurjónsdóttir skoraði 14 stig, þar af 12 úr þriggja stiga skotum en hún var með 4/5 í þristum. Signý Hermannsdóttir var drjúg í vörninni og tók 8 fráköst og varði ein 4 skot.

Næsti leikur hjá stelpunum verður gegn Hollandi þann 30. ágúst úti en hollenska liðið lagði í kvöld það slóvenska í Slóveníu og því verður um hörku leik að ræða.

Nánari tölfræði má sjá hérna.

Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Páll Axel Vilbergsson á leiðinni að leggja boltan í körfu Breiðabliks í Smáranum í Iceland Express-deildinni 2008.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið