
| S | M | Þ | M | F | F | L | 
| 1 | 2 | 3 | 4 | |||
| 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 
| 24.8.2008 | 7:47 | FÍR Ísland og Austurríki leika um 13. sætið klukkan 12:45 að íslenskum tíma í dag   Andri og félagar hans leika um 13. sætið í dag gegn Austurríki. Mynd: SÖA Það er óhætt að segja að það sé mikið álag á þau 23 lið sem eru hér á mótinu, en þau spila 9 leiki á 10 dögum. Í dag er komið að síðasta leiknum hjá liðunum en þá verður spilað um sæti. Ísland leikur gegn Austurríkismönnum um 13. sætið og hefst leikurinn klukkan 12:45 að íslenskum tíma. Liðin mættust í riðlakeppninni og hafði þá Ísland betur 69:58 Þýskaland og Svartfjallaland leika til úrslita á mótinu en Svartfjallendingar voru einmitt með Íslandi í riðli. Allt um mótið |