© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
19.8.2008 | 19:34 | FÍR
Frábær sigur á Dönum
Ólafur Helgi skoraði margar mikilvægar körfur í kvöld. Mynd: SÖA
U-16 ára landsliðið var rétt í þessu að leggja Dani af velli í frábærum leik.

Íslenska liðið hafði undirtökin nær allan leikinn. Staðan eftir fyrsta leikhluta var 24:19.

Danir unnu 2. leikhluta 12:14 og staðan í hálfleik var 36:33.

Vörnin hjá íslenska liðinu í seinni hálfleik var mjög góð og náðist að halda danska liðinu í einungis 8 stigum í 3. leikhluta sem Ísland vann 18:8.

Áfram héldu strákarnir að spila af krafti og fljótlega var ljóst að danska liðið ætti ekki möguleika. Leikhlutinn vannst 22:11.

24 atiga sigur 76:52 því staðreynd og Ísland öruggt um að komast í umspil um 9. - 16. sætið á mótinu. Ef Svartfjallaland vinnur Austurríki í leik sem er að hefjast þegar þetta er ritað þá lendir Ísland í 3. sæti í riðlinum sem verður að teljast góður árangur.

Athygli vakti að leikmenn austurríska liðsins voru mættir til að hvetja danska liðið af miklum móð. Að sönnum víkingasið þá var það einungis til að vekja okkar menn sem bættu bara í og lönduðu frábærum sigri. Reyndar létu þeir austurrísku eitthvað lítið fyrir sér fara undir lokin......

Á morgun er frídagur þar sem hugmyndin er að skoða miðbæinn aðeins og einnig fá strákarnir að kíkja aðeins í sundlaugina.

Hópurinn sendir bestu kveðjur heim.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá Smáþjóðaleikunum á Möltu 1993.  Magnús Matthíasson og Henning Henningsson, leikmenn A-landsliðs karla.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið