© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
18.8.2008 | 15:30 | Kristinn | Landslið
Hópurinn klár fyrir Írland
Jakob Örn í leik gegn Georgíu síðastliðinn vetur.
Íslenska karlalandsliðið í körfuknattleik undirbýr sig nú af kappi fyrir leikina í Evrópukeppninni sem fram fara í september, en fyrsti leikurinn er gegn Dönum þann 10. september í Laugardalshöll. Um helgina voru þrjár æfingar hjá liðinu og ein æfing verður á morgun, þriðjudag. Liðið heldur svo til Írlands á miðvikudaginn á æfingamótið Emerald Hoops sem er síðasta skrefið í undirbúningnum.

Mótið er fjögurra liða æfingamót þar sem íslenska liðið mun leika við þrjá leiki við landslið Írlands, Póllands og gegn Notra Dame háskólaliðinu. Aðspurður sagði Guðjón Skúlason, aðstoðarþjálfari landsliðsins, að mótið væri mikilvægur liður í undirbúningi þess fyrir komandi átök til að þjappa mönnum saman og fínslípa nokkra hluti í leik liðsins.

Sigurður Ingimundarson, landsliðsþjálfari, og Guðjón Skúlason aðstoðarmaður hans hafa gert nokkrar breytingar á liðinu sem lék tvo æfingaleiki gegn Litháen í júlí. Jón Arnór Stefánsson, Friðrik Stefánsson, Sveinbjörn Claessen og Fannar Ólafsson koma inn í stað þeirra Harðar Axels Vilhjálmssonar, Finns Magnússonar, Hreggviðs Magnússonar og Jóhanns Ólafssonar.

Liðið er þannig skipað:
Fannar Ólafsson
Friðrik Stefánsson
Sigurður Þorsteinsson
Helgi Magnússon
Hlynur Bæringsson
Sigurður Þorvaldsson
Logi Gunnarsson
Jón Arnór Stefánsson
Jakob Örn Sigurðarson
Páll Axel Vilbergsson
Magnús Þór Gunnarsson
Sveinbjörn Claessen

tengil á mótið: www.emeraldhoops.com

Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá Evrópukeppni U-20 landsliða í Evora í Portúgal árið 1993.  Eggert Garðarsson, Hjörtur Harðarson, Bergur Eðvarðsson, Marel Guðlaugsson og Hinrik Gunnarsson.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið