S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
16.8.2008 | 16:50 | FÍR | Landslið
Góður sigur á Austurríki í dag
Góður sigur hjá Einari Árna og lærisveinum hans á Austurríki mynd: SÖA
Liðin skiptust á körfum í upphafi leiks en góður 13:0 leikkafli íslenska liðsins skilaði 24:13 forystu eftir fyrsta leikhluta. Austurríki var ekki á því að gefast upp og með miklum spretti náðu þeir að komast 3 stigum yfir en strákarnir sýndu styrk og svöruðu hressilega og höfðu 10 stiga forystu í hálfleik 43:33. Austurríki byrjaði seinni hálfleikinn betur og unnu 3. leikhlutann 14:12 og staðan þá 55:47. Lengra komst Austurríki ekki og náðist á tímabili 18 stiga forysta okkar drengja. Lokatölur urðu 69:58 Einar Árni þjálfari ákvað að láta liðið spila 2-3 svæðisvörn frá byrjun og gafst það mjög vel, strákarnir voru duglegir að loka svæðum og var vinnslan í liðinu mjög góð. Allir leikmenn lögðu mikið á sig og þeir leikmenn sem spiluðu minna eiga heiður skilinn fyrir hvatningu á liðsfélaga sína. Það er ekki sjálfgefið að leikmenn sem sitja utan vallar hvetji með þessum hætti. Svona liðsandi er gulls ígildi. |