© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
15.8.2008 | 19:49 | FÍR | Landslið
Íslensku strákarnir hlupu á vegg í Bosníu
Styrmir Fjeldsted mynd: Snorri Örn
Íslenska U-16 ára landslið drengja lék sinn fyrsta leik í Evrópukeppninni og voru andstæðingarnir lið heimamanna.

Eftir ágætis byrjun þar sem íslenska liðið skoraði 6 fyrstu stig leiksins má segja að strákarnir hafi hlaupið á vegg í orðsins fyllstu. Heimamenn hertu vörnina og voru mjög líkamlegir í maður á mann vörn allan völlinn. Það ásamt súrefnisleysi og miklum hita gerði það að verkum að leikur liðsins fjaraði út smám saman.

Í hálfleik var staðan 50:25 Bosníu í vil. Framan af þriðja leikhluta hélst sami munur en undir lok þess þriðja jókst munurinn frekar.

Þegar upp var staðið hafði Bosnía öruggan sigur 93:57.

Haukur Pálsson skoraði 11 stig, tók 9 fráköst og stal 4 boltum, Björn Kristjánsson gerði 9 stig, Styrmir Gauti Fjeldsteð gerði 8 stig og tók 7 fráköst, Hjalti Valur Þorsteinsson og Óli Ragnar Alexandersson skoruðu 7 stig hvor, Ólafur Helgi gerði 4 sitg, Elvar Sigurðsson 3 stig og þeir Andri Freysson og Oddur Ólafsson, Andri Þór Skúlason og Anton Örn Sandholt gerðu 2 stig hver. Björn Ingvi Björnsson Tyler barðist vel í sínum fyrsta landsleik en náði ekki að skora.

Næsti leikur liðsins er gegn Austurríki á morgun en hann er klukkan 14:45 að íslenskum tíma og hægt verður að fylgjast með honum hér
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Fyrstu Íslandsmeistararnir fengu ekki verðlaunagrip ti eignar 1952. KKÍ færði hins vegar hverjum og einum meistaranna úr ÍKF fallegan grip mörgum árum síðar. Hér er Ingi Gunnarsson fyrirliði fyrstu meistaranna úr ÍKF með grip sinn.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið