S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
12.8.2008 | 17:59 | einar
U16 heldur til Bosníu í fyrramálið
Evrópukeppnin hefst á föstudag hjá U16 drengjum
Hópurinn flýgur með Iceland Express til London í fyrramálið og dvelur þar yfir nótt en heldur svo áfram til Lubljana í Slóveníu og þaðan áfram til Sarajevo í Bosníu en áætluð koma þeirra þangað er um 22 á fimmtudagskvöldið. Á föstudagskvöld leikur íslenska liðið svo fyrsta leik sinn, en það verður stórt verkefni gegn heimamönnum og verður leikurinn sýndur í beinni útsendingu í sjónvarpinu þar í landi. Leikurinn hefst klukkan 20.00 að staðartíma. Riðlakeppnin er leikin á fimm dögum svo strákarnir leika fimm daga í röð áður en þeir fá frídag, og framhaldið ræðst svo af árangrinum í riðlinum. Ein breyting hefur orðið á íslenska hópnum en Friðrik Ingi Rúnarsson framkvæmdastjóri KKÍ mun verða fararstjóri í ferðinni í stað Erlings Hannessonar sem á ekki heimagengt að þessu sinni. Frétt með hópnum sem fer út.. Frétta verður að vænta á heimasíðu sambandsins sem og á karfan.is þá daga sem mótið stendur yfir. Einnig eru fréttir á heimasíðu FIBA Europe. Þar verður hægt að fylgjast með leikjunum í "LIVE STAT" en ætlunin er að setja tengil á síðuna þegar það liggur fyrir. |