© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
8.8.2008 | 9:55 | OOJ
Möguleikarnir á móti Finnlandi hafa aldrei verið meiri
María Ben, Signý og Helena á æfingu með landsliðinu úti í Danmörku.
Ísland mætir Finnlandi í þriðja leik sínum á Norðurlandamótinu í Gentofte klukkan 13.00 að íslenskum tíma. Íslenska kvennalandsliðið hefur aldrei náð að vinna Finna en landsliðsþjálfarinn Ágúst Björgvinsson segir að stelpurnar ætli að breyta því í dag.

"Ég tel það að okkar möguleikar á móti Finnlandi hafi aldrei verið meiri en einmitt núna. Finnar eru að spila sinn síðasta leik í þessu móti og eru búnir að spila fjóra daga í röð. Þeir spiluðu líka þrjá æfingaleiki við Litháen fyrir þetta mót þannig að þetta lið er búið að spila marga leiki á stuttum tíma. Þær eru fáliðaðar og í raun dauðuppgefnar. Ef við komum inn með rétt hugarfar og með sömu baráttu og í leiknum á móti Noregi í gær þá er ég vissum að við náum hagstæðum úrslitum í leiknum," sagði Ágúst.

Ágúst segir að liðsandinn og stemmningin sem var í leiknum á móti Noregi geti skilað íslenska liðinu langt gegn Finnum í dag. "Við ætlum að taka með þessa frábæru stemmningu sem var í hópnum í Noregsleiknum. Stelpurnar voru að hafa gaman að þessu, þær voru að leggja sig fram og það var bara virkilega góður andi í liðinu. Það er klárlega það sem við þurfum að taka með í næsta leik og í næstu leiki," sagði Ágúst að lokum.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Linda Stefánsdóttir úr ÍR og Valsmaðurinn Magnús Matthíasson voru útnefnd bestu leikmenn efstu deild Íslandsmótsins vorið 1992 á lokahófi KKÍ.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið