© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
5.8.2008 | 20:33 | OOJ
Hægt að horfa á alla íslensku leikina í beinni á netinu
Íslensku stelpurnar á opnunarhátíðinni.
Danska körfuboltalandsliðið hefur lagt mikið í framkvæmd Norðurlandamóts kvenna í Gentofte og allt skipulag á mótinu er til mikillar fyrirmyndar. Frábær framkvæmd danska sambandsins nær einnig út fyrir landsteinanna því körfuboltaáhugafólk heima á Íslandi fær tækifæri til að fylgjast með gangi mála í Gentofte. Það verður nefnilega hægt að horfa á alla leiki íslenska kvennalandsliðsins á Norðurlandamótinu í Gentofte auk þess að fylgjast vel með lifandi tölfræði í leiknum.

Íslensku stelpurnar tóku þátt í opnunarhátíð mótsins í kvöld en þá gengu öll fimm liðin inn á keppnisvöllinn í einni röð en mótið var sett á milli leikjanna tveggja sem fóru fram í gær. Í báðum leikjum urðu frekar óvænt úrslit því Norðmenn unnu Finna 66-60 og Danir skelltu Svíum 65-64. Þetta var fyrsti sigur norska kvennalandsliðsins á því finnska í 27 ár eða síðan árið 1981.

Það verður hægt að horfa á leiki íslenska liðsins í gegnum netið en Ísland mætir Svíþjóð klukkan 14.30 að íslenskum tíma á morgun. Netútsendingin er send í gegnum heimasíðu mótsins en hana má finna hér frá klukkan 14.30 á morgun.
Tölfræði leiksins verður einnig lifandi á netinu og hún verður send út hér á meðan leiknum stendur á morgun.

Danirnir hafa útbúið flotta heimasíðu um mótið þar sem finna má allar helstu upplýsingar. Þar má finna fréttir og myndir af mótinu, leikjadagskrá og tölfræði. Heimasíða mótsins má finna hér.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá meistarakeppni KKÍ – góðgerðarleiknum – í Njarðvík í september 1999.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið