© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
5.8.2008 | 10:55 | OOJ
Fimmta Norðurlandamót íslenska kvennalandsliðsins
Helena Sverrisdóttir hefur skorað 14,8 stig að meðaltali á NM kvenna.
Íslenska kvennalandsliðið er að fara að taka þátt í sínu fimmta Norðurlandamóti en þar eru liðin 35 ár síðan að liðið tók þátt í sínu fyrsta Norðurlandamót í Bærum í Noregi í apríl 1973. Íslenska kvennaliðið tók einnig þátt á Norðurlandamótinu í Uppsala í Svíþjóð 1986, NM í Bergen í Noregi 2000 og NM í Arvika í Svíþjóð 2004. Íslenska liðið hefur unnið tvo af sextán leikjum sínum á NM og náði sínum besta árangri fyrir fjórum árum þegar liðið endaði í 4. sæti af fimm liðum.

Íslenska kvennalandsliðið hefur bætt mikið stöðu sína meðal hinna Norðurlandaþjóðanna frá því að liðið tók þátt í NM á áttunda og níunda áratugnum. Kvennalandsliðið tapaði fyrstu átta leikjum sínum á NM með samtals 640 stigum og skoraði þá aðeins 22,8 stig að meðaltali í leik.

Íslensku stelpurnar hafa unnið leik á síðustu tveimur Norðurlandamótum og hafa ennfremur hækkað meðalskor sitt mót frá móti allt frá því að skora aðeins 21,0 stig í leik á sínu fyrsta Norðurlandamóti fyrir 35 árum í að skora 67,8 stig að meðaltali fyrir fjórum árum.

Íslenska landsliðið hefur eins og áður sagði unnið tvo leiki á Norðurlandamóti. Sá fyrri kom gegn Danmörku á NM í Bergen 2000. Íslenska liðið vann leikinn 62-61 þar sem Erla Þorsteinsdóttir var stigahæst með 14 stig (7 fráköst), Alda Leif Jónsdóttir skoraði 13 stig (7 stoðsendingar) og Erla Reynisdóttir var með 11 stig og þar á meðal sigurkörfu leiksins. Seinni leikurinn vannst 77-73 gegn Noregi á síðasta Norðurlandamóti sem fram fór í Arvika í Svíþjóð. Helena Sverrisdóttir kom þá með 22 stig, 10 fráköst og 7 stoðsendingar inn af bekknum, Signý Hermannsdóttir var með 12 stig (7 fráköst), Birna Valgarðsdóttir skoraði 10 stig og þær Alda Leif Jónsdóttir og Hildur Sigurðardóttir skoruðu 9 stig hvor.

Árangur kvennalandsliðsins í sögu NM kvenna:
1973 5. sæti
1986 5. sæti
2000 5. sæti (á slakari innbyrðisstöðu gegn Noregi)
2004 4. sæti

Meðalstigaskor kvennalandsliðsins á NM:
1973 21,0 stig í leik
1986 24,5
2000 52,8
2004 67,8

Meðalstigaskor mótherja kvennalandsliðsins á NM:
1973 87,3 stig á sig í leik
1986 118,3
2000 72,5
2004 81,3
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Úrslitaleik U18 nýlokið og strákarnir orðnir Norðurlandameistarar 2009
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið