© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
22.6.2001 | 22:26 | bl
Ríkharður lék manna best í rokinu
Metþáttaka var í golfmóti körfuboltamanna sem fram fór á Strandarvelli við Hellu í dag, en alls tóku 46 manns þátt í mótinu. Ríkharður Hrafnkelsson sigraði í keppni án forgjafar og lék hann því manna best eða á 74 höggum.

Í öðru sæti án forgjafar varð Ingvi Árnason og Hörður Bergsteinsson varð í þriðja sæti. Þei léku báðir á 84 höggum.

Í keppni með forgjöf sigraði Kristján Rafnsson. Í öðru sæti varð Fannar Ólafsson og Ríkharður Hrafnkelsson varð í þriðja sæti. Þeir voru allir í 64 höggum nettó.

Nándarverðlaun á 18 braut hlaut Marinó Sveinsson, en hann var 1,31 m frá holun eftir upphafshögg sitt.

Mótið var vel heppnað þrátt fyrir nokkurn vind og keppendur voru á öllum aldri. Allt frá landsliðsmönnum frá árinu 1961 (Guðmundur Þorsteinsson, Marinó Sveinsson) til landsliðmanna dagsins í dag (Fannar Ólafsson) og allt þar á milli (Jón Sigurðsson, Torfi Magnússon og fl.). Leikmenn, dómarar, stjórnarmenn og nefndarmenn KKÍ.

Stefnt er að því að næsta mót verði á sama tíma að ári eða föstudaginn fyrir Jónsmessu. Ekki hefur verið ákveðið hvar það mót verður haldið.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Lið Grindavíkur sem varð Reykjanesmeistarar haustið 2007
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið