© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
27.7.2008 | 19:39 | einar
U16 drengir á EM Í Sarajevo, Bosníu
U16 drengir halda til Sarajevo á EM
U16 drengjalandsliðið heldur þann 13. ágúst áleiðis til Sarajevo í Bosníu þar sem þeir taka þátt í Evrópukeppni U16, B-deild.

Einar Árni Jóhannsson þjálfari liðsins hefur valið þá 12 leikmenn sem munu leika fyrir Íslands hönd í Bosníu.



4 Andri Freysson bakvörður Haukar
5 Óli Ragnar Alexandersson bakvörður Njarðvík
6 Elvar Sigurðsson bakvörður Fjölnir
7 Hjalti Valur Þorsteinsson bakvörður Hamar
8 Björn Kristjánsson bakvörður Breiðablik
9 Ólafur Helgi Jónsson bakvörður Njarðvík
10 Oddur Ólafsson bakvörður Hamar
11 Björn Ingvi Björnsson miðherji Fjölnir
12 Andri Þór Skúlason miðherji Keflavík
13 Haukur Helgi Pálsson framherji Fjölnir
14 Styrmir Gauti Fjeldsted framherji Njarðvík
15 Anton Örn Sandholt framherji Breiðablik

Þjálfari: Einar Árni Jóhannsson
Aðst.þj: Örvar Þór Kristjánsson
Sjúkraþj: Jófríður Halldórsdóttir
Fararstj: Erlingur Hannesson
Dómari: Sigmundur Már Herbertsson

Björn Ingvi Björnsson er eini nýliðinn í íslenska hópnum en Björn Ingvi lék með Fjölni í vetur eftir að hafa komið frá Aftureldingu í Mosfellsbæ fyrir tímabilið.

Íslenska liðið mun leika 9 leiki á 10 dögum svo það verður mikil keyrsla á hópnum á meðan mótinu stendur.
Fyrsti leikurinn er opnunarleikur mótsins gegn heimamönnum í Bosníu en hann fer fram 15. ágúst kl 21.00 að staðartíma.

Aðrir leikir íslenska liðsins í riðlinum;
16. ágúst gegn Austurríki
17. ágúst gegn Hollandi
18. ágúst gegn Svartfjallalandi
19. ágúst gegn Danmörku

Liðið fær svo hvíld 20. ágúst áður en leikið verður seinni hlutann, sem eru fjórir leikir um sæti en það eru 23 lið sem leika í B deildinni í þetta skiptið.

Heimasíðan mun flytja frekari fréttir af liðinu þegar nær dregur, en undirbúningur liðsins hefur staðið í allt sumar og næstu tvær vikur mun lokaundirbúningur liðsins fara fram.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Guðmundur Bragason hefur verðlaunagripinn á loft eftir að Grindavík vann Íslandsmeistaratitilinn í Keflavík vorið 1996
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið