© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
26.7.2008 | 15:53 | OOJ
Ágúst er búinn að velja tólf manna hóp fyrir Norðurlandamótið
Ragna Margrét Brynjarsdóttir er eini nýliðinn.
Ágúst Björgvinsson, þjálfari A-landsliðs kvenna, hefur valið tólf manna hóp fyrir Norðurlandamótið sem fer fram í Gentofte í Danmörku dagana 5. til 9. ágúst næstkomandi. Haukar, Keflavík og Grindavík eiga öll þrjá leikmenn í hópnum. Það er einn nýliði í íslenska hópnum en Haukastúlkan Ragna Margrét Brynjarsdóttir mun leika sína fyrstu landsleiki í Danmörku en hún var valin besti ungi leikmaður Iceland Express deildar kvenna á síðasta tímabili.

Fimm félög eiga fulltrúa í hópnum en lið Hauka, Keflavíkur og Grindavíkur eiga öll þrjá leikmenn í tólf manna hópnum. KR á tvo leikmenn og Valur er síðan fimmta félagið með einn leikmann. Tveir af leikmönnum liðsins, Haukastúlkan Helena Sverrisdóttir og Keflvíkingurinn María Ben Erlingsdóttir, leika með háskólaliðum í Bandaríkjunum. Helena spilar með Texas Christian University, skammstafaður TCU en María Ben leikur með University of Texas-Pan American, sem er skammstafaður UTPA.

Hildur Sigurðardóttir er reyndasti leikmaður liðsins en hún hefur leikið 52 landsleiki fyrir A-lið kvenna frá því að hún lék sinn fyrsta leik í maí 1999. Signý Hermannsdóttir er næstleikreyndasti leikmaður liðsins með 44 leiki og sá stigahæsti en Signý hefur skorað 373 stig fyrir íslenska kvennalandsliðið. Þessar tvær eru í sérflokki hvað varðar leikreynslu í hópnum sem fer á Norðurlandamótið í ár en þriðji leikjahæsti leikmaður liðsins er Helena Sverrisdóttir með 21 leik.

Signý og Hildur setja nýtt met með því að fara á sitt þriðja Norðurlandamót með A-landsliði kvenna en bæði Helena Sverrisdóttir og María Ben Erlingsdóttir eru aftur á móti að fara spila á sínu sjötta Norðurlandamóti þegar með eru talin unglingalandsliðsmótin. Signý og Hildur voru báðar með á NM 2000 í Bergen, Noregi sem og NM 2004 í Arvika, Svíþjóð. Hinir átta leikmenn liðsins eru að fara á sitt fyrsta Norðurlandamóti hjá A-landsliði kvenna.

Ragna Margrét Brynjarsdóttir verður 94. landsliðskona Íslands frá upphafi en hún er eini nýliðin í liðinu að þessu sinni. Ragna Margrét var kosin besti ungi leikmaður Iceland Express deildar kvenna í vetur og var auk þess valin í fimm manna úrvalslið 18 ára liða kvenna á Norðurlandamóti unglinga í Solna, Svíþjóð í maí.

A-landslið kvenna fyrir Norðurlandamót 2008:

Helena Sverrirsdóttir, Haukar/Texas Christian University (TCU) (21 leikur - 310 stig)
Hildur Sigurðardóttir, KR (52 leikir - 287 stig)
Ingibjörg Jakobsdóttir, Grindavík (1 leikur)
Jovana Lilja Stefánsdóttir, Grindavík (2 leikir)
Kristrún Sigurjónsdóttir, Haukar (8 leikir - 25 stig)
Margrét Kara Sturludóttir, Keflavík (5 leikir - 8 stig)
María Ben Erlingsdóttir, Keflavík/University of Texas-Pan American (UTPA) (16 leikir - 39 stig)
Pálína Gunnlaugsdóttir, Keflavík (6 leikir - 14 stig)
Petrúnella Skúladóttir, Grindavík (6 leikir - 3 stig)
Ragna Margrét Brynjarsdóttir, Haukar (Nýliði)
Signý Hermannsdóttir, Valur (44 leikir - 373 stig)
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir, KR (3 leikir - 4 stig)
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Björn Leósson íþróttafulltrúi KKÍ á skrifstofu sinni (líklega í kringum 1999).
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið