S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
21.7.2008 | 11:32 | OOJ
Fjórtán manna hópur klár eftir æfingaferð í Borgarnes
Sigrún Ámundadóttir æfði á heimavelli um helgina. Mynd: Snorri Örn
Ferðin hófst á æfingu í Íþróttahúsinu í Borgarnesi á föstudeginum en í kjölfar hennar borðaði liðið síðan saman á Hyrnunni, frægum stoppustað á hringveginum. Eftir matinn fóru stelpurnar í óvissuferð á Hvanneyri þar sem þær fengu að kynnast ýmsu í tengslum við íslenskan búskap, fyrr og nú, enda staddar á aðalstarfsstöð Landbúnaðarháskóla Íslands. Nýfæddu kálfarnir vöktu sérstaka lukku og þá var mikið hlegið og klappað þegar keppt var í sveita-fitness. Daginn eftir var önnur æfing fyrir hádegi en eftir hádegismat fór hluti liðsins í reiðtúr á meðan aðrar skelltu sér í sund. Þriðja og síðasta æfing helgarinnar fór síðan fram eftir kaffi þar sem skipt var í tvö jöfn lið og leikinn æfingaleikur þar sem stelpurnar tóku vel á því á meðan þjálfarinn Ágúst Björgvinsson og aðstoðarmaður hans Finnur Freyr Stefánsson fylgdust vel með úr stúkunni. Einn reynslumesti dómari landsins, Borgnesingurinn Einar Þór Skarphéðinsson, dæmdi leikinn og stóð sig vel að vanda. Í lok ferðarinnar buðu þau Ámundi Sigurðsson og Ragnheiður Guðmundsdóttir, ásamt fjölskyldu til veglegrar grillveislu og þar enduðu stelpurnar vel heppnaða helgi með því að gera vel við sig í mat og drykk. Allur hópurinn vill nota tækifærið hér og þakka þeim hjónum fyrir frábærar móttökur alla helgina sem og glæsilega veislu. Ágúst Björgvinsson hefur nú tilkynnt hvaða fjórtán leikmenn munu æfa með liðinu fram að Norðurlandamóti. Það fara síðan tólf leikmenn með liðinu út á Norðurlandamótið sem fer fram í Gentofte í Danmörku dagana 5. til 9. ágúst næstkomandi. Fjórtán manna hópur A-landsliðs kvenna fyrir NM 2008: Bakverðir: Helena Sverrirsdóttir, Haukar/TCU Hildur Sigurðardóttir, KR Ingibjörg Jakobsdóttir, Grindavík Pálína Gunnlaugsdóttir, Keflavík Litlir framherjar: Jovana Lilja Stefánsdóttir, Grindavík Kristrún Sigurjónsdóttir, Haukar Margrét Kara Sturludóttir, Keflavík Petrúnella Skúladóttir, Grindavík Stórir framherjar: Fanney Lind Guðmundsdóttir, Hamar Helga Einarsdóttir, KR María Ben Erlingsdóttir, Keflavík/UTPA Sigrún Sjöfn Ámundadóttir, KR Miðherjar: Ragna Margrét Brynjarsdóttir, Haukar Signý Hermannsdóttir, Valur |