© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
24.6.2008 | 20:00 | einar
Rob hefur valið Mónakófara
U16 kvenna spila í C deild í Mónakó
Rob Hodgson þjálfari U16 kvenna hefur valið lokahóp sinn fyrir C keppni EM í Mónakó en mótið fer fram dagana 14. til 19. júlí nk. Ísland leikur í riðli með Albaníu og Gíbraltar en í hinum riðlinum eru Skotar, Möltumenn og heimamenn í Mónakó.

Þeir 12 leikmenn sem Rob valdi að þessu sinni eru;

Bergdís Ragnarsdóttir, miðherji, Fjölnir
Berglind Gunnarsdóttir, bakvörður, Snæfell
Dagmar Traustadóttir, bakvörður, Njarðvík
Elma Jóhannsdóttir, framherji, KR
Guðbjörg Sverrisdóttir, bakvörður, Haukar
Heiða Björg Valdimarsdóttir, framherji, Njarðvík
Heiðrún Kristmundsdóttir, bakvörður, KR
Hrafnhildur Sif Sævarsdóttir, miðherji, Snæfell
Ína María Einarsdóttir, bakvörður, Njarðvík
Rannveig Ólafsdóttir, bakvörður, Haukar
Sara Mjöll Magnúsdottir, framherji, Snæfell
Telma Lind Ásgeirsdóttir, bakvörður, Keflavík

Níu þessara leikmanna léku með U16 liðinu á NM í Solna í byrjun maí en þeir þrír leikmenn sem bætast í hóp að þessu sinni eru Bergdís Ragnarsdóttir frá Fjölni - en hún er þar með fyrsti kvenmaður sem valin er í landslið hjá KKÍ frá Ungmennafélaginu Fjölni í Grafarvogi, Heiða Björg Valdimarsdóttir frá Njarðvík sem einnig mun leika sína fyrstu landsleiki og Sara Mjöll Magnúsdóttir úr Snæfell en Sara Mjöll lék með U16 kvenna síðasta vor.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Lið Hauka sem sigraði í 2. deildinni vorið 1981. Aftari röð frá vinstri: Rúnar Brynjólfsson formaður körfuknattleiksdeildar Hauka, Höskuldur Björnsson, Ólafur Rafnsson, Kári Eiríksson, Kristján Arason, Eyþór Árnason, Þorteinn Aðalsteinsson, Sverrir Hjörleifsson, Birgir Örn Birgis þjálfari og Sigurbergur Steinsson stjórnarmaður. Fremri röð frá vinstri: Pálmar Sigurðsson, Sveinn Sigurbergsson, Hálfdan Markússon, Guðjón Þórðarson, Ingvar S. Jónsson og Einar Örn Birgisson sonur þjálfarans.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið