© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
24.6.2008 | 14:59 | einar
Afreksbúðir KKÍ 2008
Logi Gunnarsson heimsækir drengina á morgun
Körfuknattleikssambandið hefur staðið fyrir afreksbúðum undanfarin fimm sumur. Búðirnar eru fyrir unga og efnilega leikmenn sem þykja eiga framtíðina fyrir sér í körfuboltanum.

Í sumar er í fyrsta sinn sem kynjaskipt er í þessu verkefni og heldur Ágúst Björgvinsson utan um afrekshópinn hjá stelpunum en Ágúst þjálfar U18 og A landslið kvenna. Einar Árni Jóhannsson þjálfar strákahópinn en hann er þjálfari U16 og U15 drengja.

Afreksbúðirnar standa yfir í sex vikur og fara æfingarnar fram á höfuðborgarsvæðinu. Æft er í þrjár klukkustundir alla virka daga í þessar sex vikur. Þjálfararnir eru að fá til sín góða gesti á æfingarnar og t.d. mun Logi Gunnarsson atvinnumaður með Gijon á Spáni og margreyndur landsliðsmaður heimsækja strákana á morgun.

Um 18 leikmenn eru í hvorum hóp að þessu sinni en áður stóð hópurinn af um það bil 20 krökkum í blönduðum hóp svo það má segja að verkefnið hafi stækkað töluvert þetta sumarið.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Georgia Olga Kristiansen er ein fárra íslenskra kvenna sem hafa lagt fyrir sig dómgæslu að einhverju marki.  Hún var áður leikmaður með KR í mörg ár.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið