© 2000-2025 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
   
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
18.6.2008 | 5:16 | FÍR
17. titill Boston í höfn
Verðmætustu leikmenn tímabilsins, Paul Pierce og Kobe Bryant
Boston Celtics tók Los Angeles Lakers í kennslustund í 6. leik liðanna og vann sinn 17. meistaratitil.

Los Angeles byrjaði ágætlega og setti Kobe niður nokkrar þriggja stiga körfur en það var einungis sýnishorn því fljótlega tóku leikmenn Boston yfir og á tímabili var um algera kennslustund að ræða.

Lokatölur leiksins voru 131:92

Paul Pierce var í lokin valinn verðmætasti leikmaður úrslitanna en hann lék sérlega vel á köflum. Það verður þó að segjast að liðsheild Boston hefur verið frábær í vetur og margir leikmenn lagt sitt að mörkum. Kevin Garnett valinn besti varnarmaður tímabilsins og Ray Allen setti met í skoruðum 3 stiga skotum í lokaúrslitum.

Hinn sterki varnarleikur Boston kom vel í ljós í síðasta leiknum en á löngum köflum komust leikmenn Lakers hvorki lönd né strönd.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Ágúst Herbert Guðmundsson, þáverandi þjálfari Þórs og Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells ásamt Chuck Daly í Valencia árið 2000. 
Þeir félagar voru á þjálfaranámskeiði þar sem Daly, Ettore Mesina og tveir landsliðsþjálfarar Spánar héldu frábært námskeið. Myndin var tekin eftir einn fyrirlesturinn.
 
Chuck Daly lést 9. maí 2009, eftir baráttu við veikindi. Hann gerði meðal annars Detroit Pistons að meisturum tvö ár í röð og vann gullið mðe Draumaliðinu á Ólymíuleikunum í Barcelona 1992.
 
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið