© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
13.6.2008 | 20:59 | einar
U16 hefur undirbúning fyrir EM í Bosníu
Haukur Helgi Pálsson er fyrirliði U16 drengja
U16 ára landslið drengja fer af stað aftur um helgina, en þeir tóku þátt í NM í byrjun maí. Hópurinn mun æfa stíft í sumar, enda Evrópukeppni frá 13. til 25. ágúst og verður keppnin í Sarajevo í Bosníu.

Íslenska liðið er í 6 liða riðli, með heimamönnum, Svartfjallalandi, Austurríki, Hollandi og Dönum, en 23 lið taka þátt í B deildinni í þremur 6 liða riðlum og einum 5 liða riðli.

Eins og áður sagði lék liðið í Norðurlandamótinu í byrjun maí og þar sigruðu strákarnir allar Norðurlandaþjóðirnar, en töpuðu svo fyrir Svíum í úrslitaleik. Leikur Íslands og Danmerkur í því móti var frábær skemmtun og mikill spennuleikur og þessi lið munu mætast aftur í síðasta leiknum í riðlinum í Bosníu.

Einar Árni Jóhannsson þjálfari U16 drengja hefur valið 14 leikmenn í þennan undirbúning en 12 leikmenn munu fara til Bosníu.

Æfingahópurinn er skipaður eftirtöldum:

Andri Freysson Haukar Bakvörður 187 cm 5 landsleikir
Andri Þór Skúlason Keflavík Miðherji 198 cm 6 landsleikir
Anton Örn Sandholt Breiðablik Framherji 191 cm 6 landsleikir
Björn Kristjánsson Breiðablik Bakvörður 184 cm 5 landsleikir
Björn I Björnsson Tyler Fjölnir Miðherji 196 cm nýliði
Daníel Geirsson Fjölnir Framherji 190 cm 5 landsleikir
Elvar Sigurðsson Fjölnir Bakvörður 180 cm 5 landsleikir
Guðmundur Kári Sævarsson Haukar Framherji 192 cm nýliði
Haukur Helgi Pálsson Fjölnir Framherji 198 cm 10 landsleikir
Hjalti Valur Þorsteinsson Hamar Bakvörður 183 cm 5 landsleikir
Oddur Ólafsson Hamar Bakvörður 182 cm 5 landsleikir
Ólafur Helgi Jónsson UMFN Bakvörður 190 cm 5 landsleikir
Óli Ragnar Alexandersson UMFN Bakvörður 178 cm 5 landsleikir
Styrmir Gauti Fjeldsted UMFN Framherji 193 cm 5 landsleikir


Hópurinn æfir á Ásvöllum í Hafnarfirði um helgina.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá leik Hauka og ÍR í 1. deild kvenna í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði árið 1983.  Leikhlé hjá þjálfaranum, Kolbrúnu Jónsdóttur.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið