© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
5.6.2008 | 20:14 | FÍR
Úrslitarimma Boston og Lakers hefst í kvöld
Þessir kappar hafa heldur betur komið við sögu Celtics og Lakers.
Það styttist í að gömlu stórveldin hefji leik í baráttunni um NBA meistaratitilinn en fyrsti leikurinn hefst klukkan 01:00 eftir miðnætti í kvöld.

Það má segja að áhugi fyrir NBA sé heldur betur að vakna en vitað er um hópa hingað og þangað um land allt sem ætla að koma saman til að horfa á leikina sem eru framundan.

Áhugi fyrir NBA deildinni hefur verið að aukast jafnt og þétt síðustu árin og virðist vera að nálgast fyrri vinsældir.

Auðvitað spilar alltaf inn í hvaða lið mætast hverju sinni, áhuginn eykst þegar skemmtileg og litrík lið mætast og það má með sanni segja að svo sé nú. Þessi tvö lið eiga stærstu aðdáendahópana um allan hóp og það heyrast sögur alls staðar frá um mikla stemningu vegna rimmunnar framundan.

Flestir spá Lakers sigri en Boston á heimavöllinn ef á þarf að halda. Í lokaúrslitum er leikið eftir 2-3-2 kerfinu. Boston á fyrstu 2, Lakers næstu 3 ef þarf og svo Boston síðustu 2 ef til kemur.

Leikjaniðurröðun og annað ítarefni er hægt að finna hér

Allir leikirnir verða í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Pavel Ermolinskij sækir hér að körfu Georgíumanna sumarið 2006. Íslenska U20 ára liðið tók þátt í B-deild Evrópukeppninnar það sumarið.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið